[Vid-stund] Á MIÐVIKUDAG: Morgunverðarfundur 23. febrúar"Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum rekstri" kl. 8-10 á Grand Hótel Reykjavík
Ásta Möller
astam at hi.is
Mon Feb 21 12:47:24 GMT 2011
Eru breytingar framundan á stjórnendastefnu ríkisins? Hvaða hugmyndir
liggja að baki ráðningarvaldi ráðherra og hvernig samræmast þær kenningum
stjórnsýslufræðanna? Er ríkið að fá það besta út úr verðmæti mannafla
þess?
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála boða til
morgunverðarfundar miðvikudaginn 23. febrúar kl. 8-10.
Hefst með morgunverði kl. 8, dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl.
10.00 á Grand hótel Reykjavík.
Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum
rekstri
Þátttökugjald er 3900,- morgunverður innifalinn. Skráning HÉR
Miklir umbreytingar eru í starfsemi hins opinbera. Á
morgunverðarfundinum er horft til breyttra hugmynda um stöðu og störf
stjórnenda í opinberum rekstri. Í nálægum löndum hefur verið lögð
áhersla á að endurskipuleggja og endurskilgreina stöður æðstu stjórnenda í
áhrifastöfum til að að auka metnað, skapa hvatningu til að skara fram úr
og rækta samstöðu meðal æðstu stjórnenda. Tillögur um endurbætur á
íslenska stjórnkerfinu fela m.a. í sér aukið gagnsæi, bætt verklag og
fagmennsku við ráðningar og að hæfnismat sé grundvöllur ráðninga í æðstu
stöður hjá stofnunum ríkisins. Þá er ábyrgð, hlutverk og árangur
stjórnenda til skoðunar, auk þess sem rætt er um möguleika á sveigjanleika
og hreyfanleika í störfum.
Á fundinum munu þrír fyrirlesarar ræða viðfangsefnið. Gefinn verður góður
tími til umræðna í lokin. Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri
starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins fer yfir viðteknar
staðalmyndir og greinir frá breyttum áherslum um stjórnendastefnu. Dr.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor í stjórnsýslufræðum við
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands mun m.a. ræða ráðningarvald ráðherra
og hvernig það samræmist kenningum stjórnsýslufræða, stjórnun innan
stjórnarráðsins og tillögur sem koma fram í skýrslunni "Samhent
stjórnsýsla "sem kom út í desember sl.. Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður
BHM mun m.a. fjalla um hvort ríkið er að fá það besta út úr verðmæti
mannafla þess og hvað megi gera betur. Fundarstjóri og stjórnandi
umræðna er Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga ríkisins og formaður
Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
Með bestu kveðju,
Ásta Möller MPA,
forstöðumaður/director
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management
and Politics.
Háskóli Íslands/University of Iceland
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
astam at hi.is
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110221/5777fbfb/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 48558 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110221/5777fbfb/attachment-0001.gif
More information about the Vid-stund
mailing list