Eru breytingar framundan á stjórnendastefnu ríkisins?  Hvaða hugmyndir
liggja að baki ráðningarvaldi ráðherra og hvernig samræmast þær kenningum
stjórnsýslufræðanna?  Er ríkið að fá það besta út úr verðmæti mannafla
þess?

Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
boða til

morgunverðarfundar miðvikudaginn 23. febrúar kl. 8-10.

Hefst með morgunverði kl. 8, dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl.
10.00 á Grand hótel Reykjavík.

Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum rekstri

Þátttökugjald er 3900,- morgunverður innifalinn.  Skráning HÉR

Miklir umbreytingar eru í starfsemi hins opinbera.   Á morgunverðarfundinum
er horft til breyttra hugmynda um stöðu og störf stjórnenda í opinberum
rekstri.   Í nálægum löndum hefur verið lögð áhersla á að endurskipuleggja
og endurskilgreina stöður æðstu stjórnenda í áhrifastöfum til að að auka
metnað, skapa hvatningu til að skara fram úr og rækta samstöðu meðal æðstu
stjórnenda.  Tillögur um endurbætur á íslenska stjórnkerfinu fela
m.a. í sér aukið gagnsæi, bætt verklag og fagmennsku við ráðningar og að
hæfnismat sé grundvöllur ráðninga í æðstu stöður hjá stofnunum ríkisins.
Þá er ábyrgð, hlutverk og árangur stjórnenda til skoðunar, auk þess sem
rætt er um möguleika á sveigjanleika og hreyfanleika í störfum.

Á fundinum munu þrír fyrirlesarar ræða viðfangsefnið.  Gefinn verður
góður tími til umræðna í lokin.  Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri
starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins fer yfir viðteknar staðalmyndir
og greinir frá breyttum áherslum um stjórnendastefnu.   Dr. Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir, lektor í stjórnsýslufræðum við Stjórnmálafræðideild Háskóla
Íslands  mun m.a. ræða ráðningarvald ráðherra og hvernig það samræmist
kenningum stjórnsýslufræða, stjórnun innan stjórnarráðsins og tillögur
sem koma fram í skýrslunni "Samhent stjórnsýsla "sem kom út í
desember sl..  Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM mun m.a. fjalla
um hvort ríkið er að fá það besta út úr verðmæti mannafla þess og hvað
megi gera betur.   Fundarstjóri og stjórnandi umræðna er  Magnús
Guðmundsson, forstjóri Landmælinga ríkisins og formaður Félags forstöðumanna
ríkisstofnana.

Með bestu kveðju,

Ásta Möller MPA,

forstöðumaður/director

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management
and Politics.

Háskóli Íslands/University of Iceland

Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík

astam@hi.is

Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307

Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is

Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/