[Vid-stund] Fréttatilkynning: Skýrsla um kortlagningu skapandi greina kynnt á Málstofu Viðskiptafræðideildar þriðjudaginn 3. maí kl. 12 í Odda, O-101
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Thu Apr 28 17:12:18 GMT 2011
Fréttatilkynning
Kortlagning skapandi greina - skýrsla kynnt
Málstofa í HÍ þriðjudaginn 3. maí kl. 12.00
Skapandi greinar hafa ótvírætt hagrænt gildi
Skýrsla um kortlagningu hagrænna áhrifa skapandi greina verður kynnt á
málstofu í Háskóla Íslands þriðjudaginn 3. maí kl. 12:00. Höfundar
skýrslunnar eru Margrét Sigrún Sigurðardóttir lektor við
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tómas Young rannsakandi.
Skýrslan er skrifuð í kjölfar kynningar á tölulegum niðurstöðum rannsóknar
á hagrænum áhrifum skapandi greina, sem fram fór 1. desember sl. í Bíó
Paradís. Með skýrslunni er lokið vinnunni við þessa tilteknu rannsókn, sem
Samráðsvettvangur skapandi greina ásamt Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Iðnaðarráðuneyti, Efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Fjármálaráðuneyti,
Utanríkisráðuneyti og Íslandsstofa stóðu fyrir og fjármögnuðu.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að skapandi greinar veltu 189
milljörðum árið 2009. Útflutningstekjur skapandi greina voru um 24
miljarðar árið 2009 eða um 3% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar.
Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir efnahagslega
lægð í öðrum atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað. Rannsóknin leiðir
í ljós ótvíræðan hagrænan ávinning skapandi greina og undirstrikar þá
auðlind sem fólgin er í menningar- og listtengdri starfsemi. Með því að
kortleggja hagrænan ávinning er ekki verið að kasta rýrð á hið
óáþreifanlega gildi menningar og lista, sem aldrei verður metið til fjár,
heldur er verið að leiða fram í dagsljósið áður ókannaða stoð undir
atvinnulíf þjóðarinnar.
Kortlagning á umfangi skapandi greina í atvinnulífi og efnahag þjóðarinnar
hefur það að markmiði að einfalt verði á hverjum tíma að finna vægi
þessara greina og bera saman við vægi annarra atvinnugreina í samfélaginu,
m.ö.o. að skapandi greinar verði sjálfsagður hluti af þjóðhagsreikningi
okkar. Þá má gera ráð fyrir að kortlagningin nýtist stjórnvöldum, öðrum
opinberum aðilum og atvinnugreininni sjálfri við hvers konar stefnumótun í
atvinnumálum.
Rannsóknin var unnin af breska sérfræðingnum Colin Mercer í samstarfi við
Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur og Tómas Young sem skrifuðu skýrsluna.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri ÚTÓN, hefur haft umsjón
með verkefninu og verið talsmaður þess fyrir hönd Samráðsvettvangs
skapandi greina.
Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, setur málstofuna
sem hefst kl. 12:00 og fer fram í Odda við Sturlugötu, stofu 101.
Fundarstjóri er Ingjaldur Hannibalsson deildarforseti
Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.
Frekari upplýsingar veita Bjargey Anna Guðbrandsdóttir markaðs- og
samskiptastjóri Viðskiptafræðideildar, bjargey at hi.is, s. 6942907
og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, anna at icelandmusic.is, s. 8244371
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110428/b0e12d2a/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Frettatilkynning_Kortlagning_skapandi_greina.pdf
Type: application/octet-stream
Size: 69252 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110428/b0e12d2a/attachment-0001.obj
More information about the Vid-stund
mailing list