Fréttatilkynning

Kortlagning skapandi greina - skýrsla
kynnt

Málstofa í HÍ þriðjudaginn 3. maí kl.
12.00

Skapandi greinar hafa ótvírætt hagrænt
gildi

Skýrsla um  kortlagningu hagrænna
áhrifa skapandi greina verður kynnt á málstofu í Háskóla Íslands þriðjudaginn
3. maí kl. 12:00.  Höfundar skýrslunnar eru Margrét Sigrún Sigurðardóttir
lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tómas Young rannsakandi.

Skýrslan er skrifuð í kjölfar kynningar
á tölulegum niðurstöðum rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina,
sem fram fór 1. desember sl. í Bíó Paradís. Með skýrslunni er lokið vinnunni
við þessa tilteknu rannsókn, sem Samráðsvettvangur skapandi greina
ásamt Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Iðnaðarráðuneyti, Efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, Utanríkisráðuneyti
og Íslandsstofa stóðu fyrir og fjármögnuðu.

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru
þær að skapandi greinar veltu 189 milljörðum árið 2009. Útflutningstekjur
skapandi greina voru um 24 miljarðar árið 2009 eða um 3% af heildarútflutningstekjum
þjóðarinnar. Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir
efnahagslega lægð í öðrum atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað. Rannsóknin
leiðir í ljós ótvíræðan hagrænan ávinning  skapandi greina og undirstrikar
þá auðlind sem fólgin er í menningar- og listtengdri starfsemi.  Með
því að kortleggja  hagrænan ávinning er ekki verið að kasta rýrð á
hið óáþreifanlega gildi menningar og lista, sem aldrei verður metið til
fjár, heldur er verið að leiða fram í dagsljósið áður ókannaða stoð undir
atvinnulíf þjóðarinnar.

Kortlagning á umfangi skapandi greina í
atvinnulífi og efnahag þjóðarinnar hefur það að markmiði að einfalt verði
á hverjum tíma að finna vægi þessara greina og bera saman við vægi annarra
atvinnugreina í samfélaginu, m.ö.o. að skapandi greinar verði sjálfsagður
hluti af þjóðhagsreikningi okkar. Þá má gera ráð fyrir að kortlagningin
nýtist stjórnvöldum, öðrum opinberum aðilum og atvinnugreininni sjálfri
við hvers konar stefnumótun í atvinnumálum.

Rannsóknin var unnin af breska sérfræðingnum
Colin Mercer í samstarfi við Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur og Tómas Young
sem skrifuðu skýrsluna.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri
ÚTÓN, hefur haft umsjón með verkefninu og verið talsmaður þess fyrir hönd
Samráðsvettvangs skapandi greina.

Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín
Jakobsdóttir,  setur málstofuna sem  hefst kl. 12:00 og fer fram
í Odda við Sturlugötu, stofu 101. Fundarstjóri er Ingjaldur Hannibalsson
deildarforseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar veita Bjargey Anna
Guðbrandsdóttir markaðs- og samskiptastjóri Viðskiptafræðideildar, bjargey@hi.is,
s. 6942907

og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, anna@icelandmusic.is,
s. 8244371