[Vid-stund] Vilt þú vera með erindi á Þjóðarspegli - ráðstefnu í félagsvísindum 29. okt.?
Kristín Klara Einarsdóttir
kke at hi.is
Thu May 20 15:58:59 GMT 2010
Vilt þú taka þátt í Þjóðarspegli 2010?
Hér með er kallað eftir ágripum að erindum fyrir Þjóðarspegil: Ráðstefnu í
félagsvísindum XI sem haldin verður föstudaginn 29. október 2010 við
Háskóla Íslands. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á
baugi í rannsóknum í félagsvísindum á Íslandi ár hvert.
Áhugasömum fræðimönnum og sérfræðingum á sviði félagsvísinda er boðið að
senda inn 200 orða ágrip fyrir 15. júní næstkomandi. Ágrip þarf að
innihalda stutta lýsingu á markmiði rannsóknar, aðferðum og helstu
niðurstöðum eða lærdómi. Sendist til Sóleyjar Lúðvíksdóttur,
þjónustufulltrúa á Félagsvísindastofnun HÍ á netfangið soleyl at hi.is. Mjög
gjarnan er tekið á móti tillögum að málstofum með fjórum erindum.
Fyrirhugaðar eru nokkrar breytingar á ráðstefnunni. Tilraun verður gerð
með að bjóða höfundum ritrýni á greinar sínar. Þeir höfundar sem þess
æskja eru beðnir um að taka það fram í ágripi sínu. Skilafrestur á
full-ritrýndum greinum verður skemmri en á þeim sem fá ritstýringu á þann
hátt sem verið hefur á birtingu erinda frá Þjóðarspegli.
Fyrirhugað er að ráðstefnuritin verði tvö, annað með ritrýndum greinum og
hitt með ritstýrðum greinum og að þau verði nú gefin út rafrænt og í opnum
aðgangi.
ATHUGIÐ EFTIRFARANDI:
Ágrip skal merkja með nafni, titli/stöðu, heimilisfangi og
netfangi aðalhöfundar. Ef um fleiri höfunda er að ræða skulu nöfn þeirra
einnig standa á ágripinu.
Ágripum skal skilað sem viðhengi í tölvupósti, merkt upphafsstöfum
fræðasviðs og nafni höfundar. Dæmi:
o HAG_JonJonsson (fyrir hagfræði)
o VID_JonJonsson (fyrir viðskiptafræði)
o FELMAN_JonJonsson (fyrir fræðasvið Félags- og mannvísindadeildar)
o STJ_JonJonsson (fyrir stjórnmálafræði)
o FELRAD_JonJonsson (fyrir félagsráðgjöf)
Hver og einn getur aðeins verið höfundur að tveimur greinum,
aðalhöfundur að einni og annar höfundur að annarri. Hver þátttakandi getur
aðeins kynnt eitt erindi á ráðstefnudaginn.
ÁGRIPUM SEM BERAST EFTIR 15. JÚNÍ ER SJÁLFKRAFA HAFNAÐ.
Þegar nær dregur ráðstefnunni verður kallað eftir tillögum að
veggspjöldum/posterum. Að gefnu tilefni er leiðbeinendum framhaldsnema
bent á að þar er góð leið til að kynna framúrskarandi lokaverkefni á
meistara- eða doktorsstigi.
Allir höfundar fá staðfestingu á móttöku ágrips. Staðfesting ritstjóra um
samþykkt eða höfnun ágrips verður send til höfunda 25. júní.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Þór Jóhannesson (gtj at hi.is),
Félagsvísindastofnun HÍ.
Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands
Sími 525-4501
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100520/0b4a755a/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list