Vilt þú taka þátt í Þjóðarspegli 2010?

Hér með er kallað eftir ágripum að erindum
fyrir Þjóðarspegil: Ráðstefnu í félagsvísindum XI sem haldin verður föstudaginn
29. október 2010 við Háskóla Íslands. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og
miðla því sem efst er á baugi í rannsóknum í félagsvísindum á Íslandi ár
hvert.

Áhugasömum fræðimönnum og sérfræðingum
á sviði félagsvísinda er boðið að senda inn 200 orða ágrip fyrir 15.
júní næstkomandi. Ágrip þarf að innihalda stutta lýsingu á markmiði
rannsóknar, aðferðum og helstu niðurstöðum eða lærdómi. Sendist til Sóleyjar
Lúðvíksdóttur, þjónustufulltrúa á Félagsvísindastofnun HÍ á netfangið soleyl@hi.is.
Mjög gjarnan er tekið á móti tillögum að málstofum með fjórum erindum.

Fyrirhugaðar eru nokkrar breytingar á ráðstefnunni.
Tilraun verður gerð með að bjóða höfundum ritrýni á greinar sínar. Þeir
höfundar sem þess æskja eru beðnir um að taka það fram í ágripi sínu.
Skilafrestur á full-ritrýndum greinum verður skemmri en á þeim sem fá ritstýringu
á þann hátt sem verið hefur á birtingu erinda frá Þjóðarspegli.

Fyrirhugað er að ráðstefnuritin verði tvö,
annað með ritrýndum greinum og hitt með ritstýrðum greinum og að þau verði
nú gefin út rafrænt og í opnum aðgangi.

ATHUGIРEFTIRFARANDI:

Ágrip
skal merkja með nafni, titli/stöðu, heimilisfangi og netfangi aðalhöfundar.
Ef um fleiri höfunda er að ræða skulu nöfn þeirra einnig standa á ágripinu.

Ágripum
skal skilað sem viðhengi í tölvupósti, merkt upphafsstöfum fræðasviðs og
nafni höfundar. Dæmi:

o        HAG_JonJonsson
(fyrir hagfræði)

o        VID_JonJonsson
(fyrir viðskiptafræði)

o        FELMAN_JonJonsson
(fyrir fræðasvið Félags- og mannvísindadeildar)

o        STJ_JonJonsson
(fyrir stjórnmálafræði)

o        FELRAD_JonJonsson
(fyrir félagsráðgjöf)

Hver
og einn getur aðeins verið höfundur að tveimur greinum, aðalhöfundur að
einni og annar höfundur að annarri. Hver þátttakandi getur aðeins kynnt
eitt erindi á ráðstefnudaginn.

ÁGRIPUM SEM BERAST EFTIR 15. JÚNÍ ER SJÁLFKRAFA HAFNAÐ.

Þegar nær dregur ráðstefnunni verður kallað
eftir tillögum að veggspjöldum/posterum. Að gefnu tilefni er leiðbeinendum
framhaldsnema bent á að þar er góð leið til að kynna framúrskarandi lokaverkefni
á meistara- eða doktorsstigi.

Allir höfundar fá staðfestingu á móttöku
ágrips. Staðfesting ritstjóra um samþykkt eða höfnun ágrips verður send
til höfunda 25. júní.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Þór
Jóhannesson (gtj@hi.is),
Félagsvísindastofnun HÍ.

Kristín Klara Einarsdóttir

deildarstjóri

Viðskipta- og hagfræðideildar

Háskóla Íslands

Sími 525-4501