[Vid-stund] Vefritið Stjórnmál og stjórnsýsla 1. árg 2010 komið út; fimm fræðigreinar og fjórar almennar greinar
Ásta Möller
astam at hi.is
Wed Jun 30 12:27:59 GMT 2010
Ágætu kennarar Félagsvísindasviðs og starfsfólk Félagsvísindastofnunar.
Út er komið á vefnum 1. tbl. sjötta árgangs 2010 vefritsins Stjórnmál og
stjórnsýsla: http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
Í ritinu eru 9 greinar, þar af fimm ritrýndar greinar og fjórar greinar
almenns eðlis. Þær eru aðgengilegar á vef tímaritsins, en beinir tenglar á
greinarnar fylgja hér fyrir neðan.
Í fræðilegum greinum er fjallað um Upplýsingalög og gildissvið þeirra, um
hugtökin umhverfi og umhverfisáhrif í ljósi hæstaréttardóms frá árinu
2008, um bankahrun, ímynd og traust, um áhrif feminisma á utanríkisstefnu
Íslands á 10 ára tímabili 1999-1009 og um jafnréttisfræðslu í skólum. Í
almennu efni fjallar m.a. Jón Sigurðsson, fv. formaður Framsóknarflokksins
um kosningadaga 2007. Einnig eru greinar um stefnumótun í löggæslumálum,
skatteftirlit í aðdraganda hrunsins og um þjóðarnetföng.
Fræðigreinarnar eru eftir vísindamenn við Háskóla Íslands og Háskólann í
Reykjavík, auk lögfræðings við EFTA dómstólinn, en almennar greinar eru
eftir kennara við Háskólann í Reykjavík og aðra fræðimenn m.a. við H.Í.
Athygli er vakin á að hægt er að gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af
Tímaritinu stjórnmál og stjórnsýsla sem kemur út einu sinni á ári með
ritrýndum greinum.
Árgangur 2009 er nýkominn út, sjá efni og höfundar. Hér er hægt að
gerast áskrifandi
Með bestu kveðjum frá ritstjórn og forstöðumanni,
Ásta Möller
Arnar Þór Másson,
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson
Margrét S. Björnsdóttir
Ómar H. Kristmundsson.
Stjórnmál og stjórnsýsla-vefrit- 1. tbl. 6. árgangur 2010:
Greinar í 1. tbl. 2010
Fimm fræðigreinar:
Gildissvið upplýsingalaga, Kjartan Bjarni Björgvinsson lögfræðingur við
EFTA-dómstólinn
Bankahrun, ímynd og traust, Þórhallur Guðlaugsson dósent við
viðskiptafræðideild H.Í. og Friðrik Eysteinsson aðjúnkt við
viðskiptafræðideild H.Í.
Hvað er umhverfi?: Um hugtökin umhverfi og umhverfisáhrif í ljósi
niðurstöðu Hæstaréttar í máli nr. 671/2008, Ásdís Hlökk Theódórsdóttir
aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
Áhrif femínisma á utanríkisstefnu Íslands 1999-2009, Silja Bára
Ómarsdóttir aðjúnkt við stjórnmálafræðideild H.Í.
Jafnréttisfræðsla í skólum ? Frá dauðum lagabókstaf til jákvæðrar
aðgerðaskyldu, Eygló Árnadóttir MA í kynjafræði og Þorgerður Einarsdóttir
prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Fjórar almennar greinar:
Kosningadagar 2007 - Minningar - greining - mat ? uppgjör: Jón
Sigurðsson þáv. iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Stefnumótun í löggæslumálum- Hlutverk og tillögur verkefnanefnda: Pétur
Berg Matthíasson stjórnmála - og stjórnsýslufræðingur, embætti
ríkislögreglustjóra
Skatteftirlit í aðdraganda hrunsins Skattsvik í boði hverra? Jóhannes
Hraunfjörð Karlsson, skattasagnfræðingur, MBA
Örugg netföng-um þjóðarnetföng Haukur Arnþórsson, Ph.D
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100630/0213b70a/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list