[Vid-stund] Útgáfuboð-Þér er hjartanlega boðið til síðdegissamkvæmis nk. þriðjudag29. júní kl. 16.30- v. útkomu 1. tbl. 6. árgangs Vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýsla- fyrirlestur Jóns Sigurðssonar fv. formanns Framsóknarflokksins, umræður, móttaka
Ásta Möller
astam at hi.is
Fri Jun 25 13:27:03 GMT 2010
Ágætu félagar.
Um leið og við þökkum mörgum ykkar samstarf á liðnum árum, viljum við með
þessu bréfi bjóða ykkur öllum til útgáfuhófs í tilefni af útkomu júní
heftis vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýslaog þætti vænt um ef sem flestir
sæju sér fært að líta við.
Hófið hefst kl. 16.30 nk. þriðjudag 29. júní í Odda stofu 101 með stuttum
fyrirlestri eins höfunda í þessu tölublaði. Það er Jón Sigurðsson fv.
formaður Framsóknarflokksins, sem í greininni Kosningadagar 2007 gerir á
hreinskilinn hátt grein fyrir aðdraganda stjórnarslita Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins vorið 2007 eftir 12 ára ríkisstjórnarsamstarf, Jón
fjallar um innanflokksátök í Framsóknarflokknum þessu tengd og loks afsögn
sína sem formaður flokksins í kjölfarið.
Að hans erindi loknu verða fyrirspurnir og umræður undir stjórn Gunnars
Helga Kristinssonar til ca. kl. 17.15 og síðan móttaka í fundarherbergi
félagsvísindasviðs á jarðhæðinni í Odda.
Efni tölublaðsins verður fjölbreytt fimm fræðigreinar og fjórar almennar
greinar. Greinarnar fjalla um fjölbreytt efni íslenskrar stjórnsýslu og
stjórnmála-og um tiltekna þætti okkar bankakerfið í aðdraganda og
eftirmálum hrunsins.
Með bestu kveðjum frá ritstjórn og forstöðumanni,
Ásta Möller
Arnar Þór Másson,
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson
Margrét S. Björnsdóttir
Ómar H. Kristmundsson.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100625/95f45bd0/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list