[Vid-stund] Á þriðjudag 14. desember kl. 16.30 Útgáfuboð-v. útkomu 2. tbl. 6. árg.; Stjórnmál og stjórnsýsla- Gunnar Helgi um "Fjölmennustu stjórnmálaflokks heims", Sturla Böðvarsson og Bryndísar Hlöðversdóttur um þingskaparlög og eftirlitshlutverk Alþings
Ásta Möller
astam at hi.is
Fri Dec 10 16:47:44 GMT 2010
Ágæti viðtakandi.
Um leið og við þökkum þér samstarfið fyrr og síðar viljum við bjóða þér
til útgáfuhófs í tilefni af útkomu desember heftis vefritsins; Stjórnmál
og stjórnsýslaOkkur þætti vænt um ef þú sæir þér fært að líta við.
Hófið hefst kl. 16.30 þriðjudaginn 14. desember í Odda stofu 101 með
stuttum fyrirlestrum höfunda efnis í desemberheftinu.
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor mun ræða áhugaverðar niðurstöður
rannsóknar sinnar um íslenska stjórnmálaflokka sem ber yfirskriftina
"Fjölmennustu flokkar heims. Meðlimaskipulag íslenskra stjórnmálaflokka",
en í greininni er gerð tilraun til að skýra þá staðreynd að tölur yfir
meðlimi íslenskra stjórnmálaflokka benda til að stærra hlutfall kjósenda
þeirra séu skráðir meðlimir en dæmi eru um annars staðar í þróuðum
lýðræðisríkjum.
Að því loknu mun Sturla Böðvarsson, fv. forseti Alþingis og fv. ráðherra
ræða efni greinar sinnar "Breytingar á þingskaparlögum og
eftirlitshlutverk Alþingis". Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor
Háskólans á Bifröst og fv. alþingismaður mun síðan bregðast við grein
Sturlu. Þess má geta að Bryndís var höfundur að drögum að frv. um
rannsóknarnefndir sem forseti Alþingis mælti fyrir 7. des. sl.., sem er
ætlað að styrkja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknum erindum til ca. kl. 17.30 og
síðan móttaka á eftir á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Efni tölublaðsins verður fjölbreytt sex fræðigreinar og fimm almennar
greinar. Greinarnar fjalla um fjölbreytt efni íslenskrar stjórnsýslu og
stjórnmála. Að venju birtast ritdómar um nýjar bækur.
Með bestu kveðjum frá ritstjórn og forstöðumanni,
Ásta Möller
Arnar Þór Másson,
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson
Margrét S. Björnsdóttir
Ómar H. Kristmundsson.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101210/ff65788d/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list