[Vid-stund] Sagan endalausa!
Hildur Bjarnadóttir
hildurb at hi.is
Fri Dec 10 13:18:42 GMT 2010
Ágætu kennarar.
Þið verðið vinsamlegast að fara yfir námskeiðin ykkar í Kennsluskrá
2011-2012 (þar sem þið berið ábyrgð á þeim og því sem birtist á netinu).
Rennið yfir þau og síðan "vistið" (þó þið breytið engu). Þá sé ég að þið
hafið alla vega sinnt þessu (helst fyrir 15. desember).
Það er mjög "hallærislegt", þegar skólaárið byrjar og Kennsluskrá ber ekki
saman við Kennsluvef (heimasíða námskeiðsins, sem þið ráðið yfir).
Breytt prófafyrirkomulag, námsmat, námskeiðslýsing o.s.frv. verður að koma
fram í Kennsluskrá, það er ekki nóg að það komi fram á Kennsluvef.
Kennsluskráin er fyrir þá sem skoða námið á netinu, Kennsluvefurinn er
eingöngu fyrir þá sem eru skráðir á námskeiðið.
Með góðri kveðju og von um viðbrögð,
Hildur
Hildur Bjarnadóttir verkefnisstjóri
Viðskiptafræðideild og hagfræðideild
Gimli v/Sæmundargötu, Háskóla Íslands
s: 5255861
fax: 5526806
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101210/e94a4cdc/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list