[Vid-stund] Á morgun föstudag: Þriðji geirinn á tímum endurreisnar: Lýðræði, félagsauður, betra velferðarkerfi og nýsköpun þess? - nýjar rannsóknarniðurstöður kynntar-Til kennara í viðsk. og hagr.deild
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Thu Nov 26 10:14:01 GMT 2009
Opin hádegismálstofa, allir velkomnir: Skráning:
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/thridjigeirinn
Þriðji geirinn á tímum endurreisnar: Lýðræði, félagsauður, betra
velferðarkerfi og nýsköpun þess?
Föstudaginn 27. nóvember kl. 12-13.15 Háskólatorg 101
Innan þriðja geirans á Íslandi starfa fjölmörg frjáls félagasamtök og
sjálfseignarstofnanir. Þau sinna mikilvægri velferðarþjónustu, berjast
fyrir málstað ólíkra hópa samfélagsins og stuðla að lýðræðislegri umræðu.
Í opinberri umræðu um endurreisn íslensks samfélags í kjölfar
bankahrunsins hefur lítið verið rætt um mikilvægi þriðja geirans í slíkri
uppbyggingu og hver áhrif kreppunnar hafa verið á starfsemi hans. Erlendis
hefur umræða, bæði meðal lærðra og leikra, verið mikil um þetta
viðfangsefni, hvernig félagasamtök í samvinnu við hið opinbera geta treyst
stoðir velferðarsamfélagsins, stuðlað að nýsköpun og framþróun í
velferðarþjónustu. Á málstofunni verður leitast við að svara eftirfarandi
spurningum: Hver eru áhrif efnahagskreppunnar á þessa starfsemi og hvert
á hlutverk þriðja geirans að vera í endurreisn samfélagsins. Kynntar verða
nýjar rannsóknaniðurstöður um þetta efni og þær bornar saman við erlendar
rannsóknir.
Málstofan er haldin á vegum félagsráðgjafardeildar og
stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands og Almannaheilla, samtaka þriðja
geirans.
12.10-12:30 Dr. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við félagsráðgjafardeild
HÍ: Áhrif efnahagskreppu á frjáls félagasamtök. Í fyrirlestrinum verða
kynntar nýjar niðurstöður rannsóknar um þetta efni og rætt um hvaða leiðir
félagasamtök hafa notað til að bregðast við ríkjandi ástandi.
12.30-12: 50 Dr. Ómar H. Kristmundsson, dósent við stjórnmálafræðideild
HÍ: Hvert á hlutverk þriðja geirans að vera í endureisn samfélagsins? Í
fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig þriðji
geirinn getur stuðlað að samfélagslegri uppbyggingu, hvers konar samstarf
sé vænlegt til árangurs og hver séu vandamál við hugsanlega aukið hlutverk
félagasamtaka í samfélagsuppbyggingu.
12.50-13.15 Fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og
formaður Almannaheilla
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091126/dde42c1f/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list