Opin hádegismálstofa, allir
velkomnir: Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/thridjigeirinn

Þriðji geirinn á tímum endurreisnar: Lýðræði, félagsauður, betra velferðarkerfi
og nýsköpun þess?

Föstudaginn 27. nóvember
kl. 12-13.15 Háskólatorg 101

Innan þriðja geirans á Íslandi starfa
fjölmörg frjáls félagasamtök og sjálfseignarstofnanir. Þau sinna mikilvægri
velferðarþjónustu, berjast fyrir málstað ólíkra hópa samfélagsins og stuðla
að lýðræðislegri umræðu. Í opinberri umræðu um endurreisn íslensks samfélags
í kjölfar bankahrunsins hefur lítið verið rætt um mikilvægi þriðja geirans
í slíkri uppbyggingu og hver áhrif kreppunnar hafa verið á starfsemi hans.
Erlendis hefur umræða, bæði meðal lærðra og leikra, verið mikil um þetta
viðfangsefni, hvernig félagasamtök í samvinnu við hið opinbera geta treyst
stoðir velferðarsamfélagsins, stuðlað að nýsköpun og framþróun í velferðarþjónustu.
Á málstofunni verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Hver
eru áhrif efnahagskreppunnar á þessa starfsemi og hvert á hlutverk þriðja
geirans að vera í endurreisn samfélagsins. Kynntar verða nýjar rannsóknaniðurstöður
um þetta efni og þær bornar saman við erlendar rannsóknir.

Málstofan er haldin á vegum félagsráðgjafardeildar og stjórnmálafræðideildar
Háskóla Íslands og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

12.10-12:30 Dr. Steinunn Hrafnsdóttir,
dósent við félagsráðgjafardeild HÍ: Áhrif efnahagskreppu á frjáls félagasamtök.
Í fyrirlestrinum verða kynntar nýjar niðurstöður rannsóknar um
þetta
efni og rætt um hvaða leiðir félagasamtök hafa notað til að bregðast við
ríkjandi ástandi.

12.30-12: 50 Dr. Ómar H. Kristmundsson,
dósent við stjórnmálafræðideild HÍ: Hvert á hlutverk þriðja geirans
að vera í endureisn samfélagsins? Í fyrirlestrinum verður fjallað um
hvernig
þriðji geirinn getur stuðlað
að samfélagslegri uppbyggingu, hvers konar samstarf sé vænlegt til
árangurs og hver séu vandamál við hugsanlega aukið hlutverk félagasamtaka
í
samfélagsuppbyggingu.

12.50-13.15
Fyrirspurnir og umræður.

Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og formaður Almannaheilla