[Vid-stund] Opinn hádegisfyrirlestur í Odda HÍ. á morgun þriðjudag: Völd og áhrif í Brussel- Myndi eitthvað breytast með ESB aðild? Hver er reynsla Íslands til þessa?

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Mon Jan 12 10:52:51 GMT 2009


Ágæti kennari.
Evrópusamtökin og Stofnun stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands munu standa 
að opnum  hádegisfyrirlestri í Odda stofu 101 á morgun þriðjudaginn 13. 
janúar kl.12.05-13.00. Þar mun Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður 
Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, fjalla um völd og áhrif innan 
Evrópusambandsins út frá langri reynslu sinni af starfi með ESB ma. sem 
vísindafulltrúi við sendiráð Íslands í Brussel. Allt áhugafólk velkomið: 

Völd og áhrif í Brussel -Myndi eitthvað breytast með ESB aðild? Hver er 
reynsla Íslands til þessa? 

Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður Rannsóknaþjónustu H.Í. hefur tekið 
þátt í samstarfi við ESB í um sextán ár. Hver er hans reynsla og sýn á 
ofangreinda spurningu.  Verðum við ekki valdalaus eða -lítil í 500 milljón 
manna ríkjasambandi? Eða munum við hugsanlega öðlast meiri áhrif en við 
höfum núna  með því að gerast fullgildir aðilar? Hvernig hafa þjóðir áhrif 
á laga og reglugerðarsetningu innan ramma ESB? Ágúst Hjörtur mun fjalla um 
þessar spurningar með raunverulegum dæmum á grundvelli reynslunnar af 
þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi fram til þessa.  

Ágúst Hjörtur er forstöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands og hefur 
tekið virkan þátt í evrópsku samstarfi á sviði vísinda og menntunar frá 
1992. Hann var í þrjú ár vísindafulltrúi í Sendiráði Íslands í Brussel.  
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090112/3e62daa3/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list