Ágæti kennari.

Evrópusamtökin og Stofnun stjórnsýslufræða
við Háskóla Íslands munu standa að opnum hádegisfyrirlestri í Odda
stofu 101 á morgun þriðjudaginn 13. janúar kl.12.05-13.00. Þar mun Ágúst
Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, fjalla
um völd og áhrif innan Evrópusambandsins út frá langri reynslu sinni af
starfi með ESB ma. sem vísindafulltrúi við sendiráð Íslands í Brussel.
Allt áhugafólk velkomið:

Völd og áhrif í Brussel -Myndi
eitthvað breytast með ESB aðild? Hver er reynsla Íslands til þessa?

Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður
Rannsóknaþjónustu H.Í. hefur tekið þátt í samstarfi við ESB í um sextán
ár. Hver er hans reynsla og sýn á ofangreinda spurningu. Verðum við
ekki valdalaus eða -lítil í 500 milljón manna ríkjasambandi? Eða munum
við hugsanlega öðlast meiri áhrif en við höfum núna með því að gerast
fullgildir aðilar? Hvernig hafa þjóðir áhrif á laga og reglugerðarsetningu
innan ramma ESB? Ágúst Hjörtur mun fjalla um þessar spurningar með raunverulegum
dæmum á grundvelli reynslunnar af þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi
fram til þessa.

Ágúst Hjörtur er forstöðumaður
Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands og hefur tekið virkan þátt í evrópsku
samstarfi á sviði vísinda og menntunar frá 1992. Hann var í þrjú ár vísindafulltrúi
í Sendiráði Íslands í Brussel.