[Vid-stund] Óskast áframsent kennurum deildanna: Þér er hjartanlega boðið til síðdegissamkvæmis nk. fimmtudag kl. 16.15- v. útkomu 2. tbl. fimmta árgangs Vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýsla- tveir stuttir fyrirlestrar og umræður, móttaka

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Mon Dec 7 12:43:28 GMT 2009


Til kennara í viðskipta- og hagfræðideild HÍ:

Um leið og við þökkum mörgum ykkar samstarf liðinna ára viljum við með 
þessu bréfi viljum við bjóða ykkur til útgáfuhófs í tilefni af útkomu 
desemberheftis vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýslaog þætti vænt um ef sem 
flestir sæju sér fært að líta við.
Hófið hefst kl. 16.15 nk. fimmtudag í Odda stofu 101 með stuttum 
fyrirlestrum höfunda tveggja fræðigreina sem báðar fást við Ísland og 
Evrópusambandið þó með ólíkum hætti sé; annars vegar greinin "Iceland’s 
Neighbours in the EU Entry Queue: Contrasts or Parallels in EU Enlargement 
to the North and the South-East" og hins vegar greinin "Sense of 
Sovereignity. How National Sentiments have Influenced Iceland‘s European 
Policy". 

Höfundar greinanna eru þau Alyson J. K. Bailes, aðjúnkt við 
stjórnmálafræðideild HÍ, Jóhanna María Þórdísardóttir MA í 
alþjóðasamskiptum og Eiríkur Bergmann dósent í stjórnmálafræði og 
forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst.

Að þeirra erindum verða fyrirspurnir og umræður til ca. kl. 17.15 og síðan 
móttaka í fundarherbergi félagsvísindasviðs á jarðhæðinni í Odda.

Efni tölublaðsins verður fjölbreytt átta fræðigreinar, tvær almennar 
greinar og allt að fjórtán bókadómar um nýútkomnar bækur um stjórnmál, 
samtímasögu, ævisögur áhrifafólks í stjórnmálum og samfélagsmálum, 
hagfræði ofl.

Með bestu kveðjum frá ritstjórn,

Arnar Þór Másson,
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson
Margrét S. Björnsdóttir
Ómar H. Kristmundsson.


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091207/75fb25b9/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list