Til kennara í viðskipta- og
hagfræðideild HÍ:

Um leið og við þökkum mörgum ykkar samstarf liðinna ára viljum við með
þessu bréfi viljum við bjóða ykkur til útgáfuhófs í tilefni af útkomu desemberheftis
vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýslaog þætti vænt um ef sem flestir
sæju sér fært að líta við.

Hófið hefst kl. 16.15 nk. fimmtudag í Odda stofu 101 með stuttum fyrirlestrum
höfunda tveggja fræðigreina sem báðar fást við Ísland og Evrópusambandið
þó með ólíkum hætti sé; annars vegar greinin "Iceland’s Neighbours
in the EU Entry Queue: Contrasts or Parallels in EU Enlargement to the
North and the South-East" og hins vegar greinin "Sense
of Sovereignity. How National Sentiments have Influenced Iceland‘s European
Policy".

Höfundar greinanna eru þau Alyson J. K. Bailes, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild
HÍ, Jóhanna María Þórdísardóttir MA í alþjóðasamskiptum og Eiríkur Bergmann
dósent í stjórnmálafræði og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á
Bifröst.

Að þeirra erindum verða fyrirspurnir og umræður til ca. kl. 17.15 og síðan
móttaka í fundarherbergi félagsvísindasviðs á jarðhæðinni í Odda.

Efni tölublaðsins verður fjölbreytt
átta fræðigreinar, tvær almennar greinar og allt að fjórtán bókadómar um
nýútkomnar bækur um stjórnmál, samtímasögu, ævisögur áhrifafólks í stjórnmálum
og samfélagsmálum,  hagfræði ofl.

Með bestu kveðjum frá ritstjórn,

Arnar Þór Másson,

Gunnar Helgi Kristinsson

Haukur Arnþórsson

Margrét S. Björnsdóttir

Ómar H. Kristmundsson.