[Vid-stund] Fw: Frá námsbókasafni Lbs.-Hbs.
Hildur Bjarnadóttir
hildurb at hi.is
Mon Aug 24 11:14:28 GMT 2009
Sæl.
Vegna sendingar frá námsbókasafni Lbs.-Hbs., sem ég sendi áfram fyrr í dag
til ykkar, skal tekið fram að þessi póstur kom 14. ágúst frá safninu, en
þar sem við vorum að fá inn nýja kennara fór þetta ekki frá
deildarskrifstofu fyrr en í dag og þ.a.l. skammur tími til stefnu að senda
bókalista.
Ég biðst afsökunar á þessu og vona að afleiðingarnar verði ekki
alvarlegar.
Bestu kveðjur,
Hildur
Hildur Bjarnadóttir verkefnisstjóri
Viðskiptafræðideild og hagfræðideild
Gimli v/Sæmundargötu, Háskóla Íslands
s: 5255861
fax: 5526806
----- Forwarded by Hildur Bjarnadóttir/HI/IS on 24.08.2009 10:54 -----
Hildur Bjarnadóttir/HI/IS
24.08.2009 08:19
To
vidskiptadeild at hi.is, hagfraedideild at hi.is, vid-stund at hi.is
cc
Subject
Frá námsbókasafni Lbs.-Hbs.
Ágætu kennarar!
Senn hefst haustmisseri og vil ég biðja þá kennara, sem vilja setja bækur
á námsbókasafn* í haust, að senda mér bókalista sem allra fyrst. Þeir sem
senda mér bókalista fyrir föstudaginn 28. ágúst nk. fá tryggingu fyrir því
að umbeðnar bækur verði komnar á námsbókasafnið þegar kennsla hefst í
september. Vegna mikilla anna á námsbókasafni við upphaf misseris getur
orðið einhver bið á því að bókalistar sem berast mér eftir þennan tíma
verði afgreiddir.
Senda má bókalista á netföngin namsbok at bok.hi.is eða
solveigo at bok.hi.is
Með fyrirfram þökk og kærri kveðju,
Sólveig D. Ögmundsdóttir
umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs.
solveigo at bok.hi.is
s.525 5770 /
5781
*Nánar má lesa um starfsemi námsbókasafns á eftirfarandi slóð:
http://landsbokasafn.is/index.php?page=namsbokasafnid
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090824/05082212/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list