[Vid-stund] Boð til kennara viðsk.d. og hagfr.d.: Hádegisfyrirlestur í Odda nk. miðvikudag: Áhrif ESB-umsóknar Íslands á Noreg og EES samninginn? Fyrirlestur eins helsta sérfr. Noregs Paal Frisvold

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Mon Aug 24 10:22:25 GMT 2009


Áhrif ESB-umsóknar Íslands á Noreg og EES samninginn?- Í Odda stofu 101, 
miðvikudaginn 26. ágúst kl. 12.00-13.15:

Á opnum hádegisfyrirlestri, sem fram fer á ensku, í Háskóla Íslands nk. 
miðvikudag, mun einn helsti sérfræðingur Norðmanna í málefnum EES og ESB, 
Paal Frisvold, formaður norsku Evrópuhreyfingarinnar, ræða áhrif 
aðildarumsóknar Ísland að ESB í Noregi. Norðmenn ganga til þingkosninga í 
haust og er líklegt að ESB aðild landsins verði meðal lykilkosningamála og 
myndi breytt afstaða Noregs vissulega hafa áhrif á aðildarumsókn Íslands  
Með Paal  í för verður Vidar Björnstad, þingmaður Verkamannaflokksins á 
norska Stórþinginu og áhrifamaður í norsku verkalýðshreyfingunni og mun 
hann taka þátt umræðum að loknum fyrirlestri Paal.   Fundarstjóri verður 
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður.

Að fundinum standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ og 
Evrópusamtökin.

Paal Frisvold er þekktur í Noregi sem einn helsti sérfræðingur landsins í 
málefnum EES samningsins og samskiptum Noregs við ESB. Hann stofnaði 
ráðgjafafyrirtækið The Brussels Office árið 2001 og hefur meðal annars 
mörg verkefni á sviði umhverfismála . 
http://www.thebrusselsoffice.eu/Ourteam/Paal/tabid/197/Default.aspx 
Hann var nýverið kjörinn formaður norsku Evrópuhreyfingarinnar. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090824/f19b3fef/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list