[Vid-stund] Til allra kennara í viðsk. og hagfr.deildum HÍ: Minnt á seinni frest til 30. apríl til að skila fræðigreinum í júní tölublað, 2009: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit

Hildur Bjarnadóttir hildurb at hi.is
Tue Apr 7 13:02:48 GMT 2009


Með góðri kveðju






Minnum á seinni frest 30. apríl nk. til að skila greinum í ritrýndan hluta 
sumar-tölublaðs 2009- almennan hluta 15. maí: Stjórnmál og stjórnsýsla 
-Veftímarit: www.stjornmalogstjornsysla.is


Ágæti viðtakandi. 
Um leið og við bendum þér á vefrit okkar um Stjórnmál og stjórnsýslu, sem 
er öllum opið á netinu viljum við minna á næsta útgáfudag ( júní  2009) og 
skilafresti fyrir greinar í tímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla- 
veftímarit. Eru allir fræði- og fagmenn sem fást við efni er tengjast 
stjórnmálum eða stjórnsýslu hvattir til að íhuga að nýta sér þennan 
vettvang. Seinni skilafrestur fyrir ritrýndar greinar er 30. apríl nk. 
(lengd 6-10 þús. orð), en greinar almenns eðlis 15. maí  (lengd 4-10 þús. 
orð).  Allt efni vefritsins og leiðbeiningar til höfunda má sjá á: 
www.stjornmalogstjornsysla.is 
Samkvæmt mati Rannsóknasviðs H.Í. hingað til nær tímaritið fyrir ritrýndu 
greinarnar 1. flokki í þeirra mati:”1. flokkur: Fagleg ritstjórn, stífar 
formlegar kröfur, ítarleg fræðileg ritrýni (mögulegt mat á greinum m.v. 
skala kjaranefndar 10 stig).” 

Veftímaritið gegnir fjölþættu hlutverki fyrir íslenska stjórnmála- og 
stjórnsýslufræði. Í því er ritrýndur hluti sem gegnir hlutverki 
fræðitímarits í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum, en slíkt rit var ekki 
til staðar áður. Með því er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingum ogöðrum 
þeim er skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera rannsóknir 
sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu greinarnar 
fjalla um sömu viðfangsefni, en eru opinn vettvangur.  Í vefritinu eru 
eftirtaldir efnisflokkar; ritrýndar fræðigreinar, greinar almenns eðlis, 
bókadómar, frásagnir af stærri rannsóknarverkefnum kennara, útdrættir úr 
lokaritgerðum háskólanema í stjórnmálafræðideild, stjórnmála- og 
stjórnsýslufræðingatal, upplýsingar um opna fundi og málþing o.fl. Félag 
stjórnmálafræðinga og Félag stjórnsýslufræðinga hafa  einnig heimasvæði 
sitt á vefsvæðinu. Þegar hafa verið gefin út sjö  tölublöð á vefnum og 
ritrýndar greinar  verið prentaðar og eru fáanlegar hjá Háskólaútgáfunni, 
helstu bókabúðum og  bókasöfnum. 

Ritstjórar ritrýnda hluta tímaritsins eru Arnar Þór Másson, MSc. og Dr. 
Gunnar Helgi Kristinsson. Efni má senda ritstjórum á tölvupóstfang 
veftímaritsins er stogst at hi.is Sjá nánari leiðbeiningar um uppsetningu og 
frágang efnis á vef tímaritsins: www.stjornmalogstjornsysla.is. 
Með bestu kveðjum frá ritstjórn, 
Arnar Þór Másson 
Gunnar Helgi Kristinsson 
Haukur Arnþórsson vefritstjóri 
Margrét S. Björnsdóttir. 

Í ráðgefandi ritstjórn eru þau 
Auðunn Arnórsson, MA í sagnfræði og stjórnmálafræði, og D.E.E.A í 
Evrópufræðum 
Baldur Þórhallsson, Ph.D. í stjórnmálafræði 
Brynhildur Ólafsdóttir, MA í stjórnmálafræði 
Davíð Logi Sigurðsson, MA í írskum fræðum og - stjórnmálum 
Eiríkur Bergmann Einarsson, Cand.Scient. Pol. og doktorsnemi við 
stjórnmálafræðiskor H.Í. 
Grétar Þór Eyþórsson, Ph.D. í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum 
Guðmundur Heiðar Frímannsson, Ph.D. í siðfræði 
Gústaf Adolf Skúlason, M.Sc. í milliríkjasamskiptum 
Halldór Grönvold, MA í vinnumarkaðsfræðum 
Hanna Birna Kristjánsdóttir, MA í stjórnmálafræði 
Helga Jónsdóttir, cand. jur. 
Guðni Th. Jóhannesson, Ph.D. í sagnfræði 
Hannes H. Gissurarson, D.Phil. í stjórnmálafræðum 
Helgi Skúli Kjartansson, cand.mag. í sagnfræði 
Indriði H. Indriðason, Ph.D. í stjórnmálafræði 
Jóhann M. Hauksson, Ph.D. í stjórnmálafræði 
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ph.D í upplýsingafræði 
Magnús Pétursson, hagfræðingur 
Ólafur Þór Gylfason M.Sc.í aðferða- og tölfræði 
Ólafur Þ. Harðarson, Ph.D. í stjórnmálafræði 
Ólafur Ísleifsson, M.Sc. í hagfræði 
Ólafur Þ. Stephensen, M.Sc. í alþjóðastjórnmálum 
Óli Jón Jónsson M.S. í evrópustjórnmálum 
Ómar H. Kristmundsson, Ph.D. í stjórnsýslufræðum 
Páll Hreinsson, dr.juris 
Róbert Ragnarsson, MA í stjórnmálafræði 
Silja Bára Ómarsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum 
Steinunn Halldórsdóttir, EMPA í stjórnsýslufræðum 
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, cand. jur. og BA í frönsku 
Svanborg Sigmarsdóttir, MA í stjórnmálafræði 
Svandís Nína Jónsdóttir, M.Sc. í stjórnmálafræði og doktorsnemi við 
stjórnmálafræðiskor H.Í. 
Trausti Fannar Valsson, cand. jur. og Ph.D nemi 
Þorsteinn Magnússon, Ph.D. í stjórnmálafræði 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090407/f1538db7/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list