[Vid-stund] Til stundakennara í viðskiptafræðideild HÍ: Minnum á fresti í nóvember til að skila greinum í desember tölublað, 2008: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Thu Oct 2 10:01:55 GMT 2008


Bestu kveðjur
Margrét S. Björnsdóttir


__________________

Minnum á fresti í nóvember til að skila greinum í desember-tölublað 2008: 
Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit: www.stjornmalogstjornsysla.is

Ágætu kennarar í viðakiptafræðideild HÍ.
Um leið og við bendum þér á vefrit okkar um Stjórnmál og stjórnsýslu, sem 
er öllum opið á netinu viljum við minna á næsta útgáfudag ( 10.-15. 
desember 2008) og skilafresti fyrir greinar í tímaritið Stjórnmál og 
stjórnsýsla- veftímarit. Eru allir fræði- og fagmenn sem fást við efni er 
tengjast stjórnmálum eða stjórnsýslu hvattir til að íhuga að nýta sér 
þennan vettvang. Skilafrestur fyrir ritrýndar greinar er 1. nóvember nk. 
(lengd 6-10 þús. orð), en greinar almenns eðlis 20. nóvember (lengd 4-10 
þús. orð).  Allt efni vefritsins og leiðbeiningar til höfunda má sjá á: 
www.stjornmalogstjornsysla.is
Samkvæmt mati Rannsóknasviðs H.Í. nær tímaritið fyrir ritrýndu greinarnar 
1. flokki í þeirra mati:”1. flokkur: Fagleg ritstjórn, stífar formlegar 
kröfur, ítarleg fræðileg ritrýni (mögulegt mat á greinum m.v. skala 
kjaranefndar 10 stig).”
Ritstjórar ritrýnda hluta tímaritsins eru Arnar Þór Másson, MSc. og Dr. 
Gunnar Helgi Kristinsson. Efni má senda ritstjórum á tölvupóstfang 
veftímaritsins er stogst at hi.is Sjá nánari leiðbeiningar um uppsetningu og 
frágang efnis á vef tímaritsins: www.stjornmalogstjornsysla.is. 
Með bestu kveðjum frá ritstjórn,
Arnar Þór Másson
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson vefritstjóri
Margrét S. Björnsdóttir.

Í ráðgefandi ritstjórn eru þau Auðunn Arnórsson, Baldur Þórhallsson, 
Birgir Hermannsson, Brynhildur Ólafsdóttir, Davíð Logi Sigurðsson, Eiríkur 
Bergmann Eiríksson, Grétar Þór Eyþórsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, 
Guðni Th. Jóhannesson, Gústaf Adolf Skúlason, Gylfi A. Dahlmann, Halldór 
Grönvold, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Hannes H. Gissurarson, Helga 
Jónsdóttir, Helgi Skúli Kjartansson, Indriði H. Indriðason, Jóhann M. 
Hauksson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Magnús Pétursson, Ólafur Þór Gylfason, 
Ólafur Þ. Harðarson, Ólafur Ísleifsson, Ólafur Þ. Stephensen, Óli Jón 
Jónsson, Ómar H. Kristmundsson, Róbert Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, 
Stefanía Óskarsdóttir, Steinunn Halldórsdóttir, Svala Ísfeld Ólafsdóttir, 
Svanborg Sigmarsdóttir, Svandís Nína Jónsdóttir, Trausti Fannar Valsson og 
Þorsteinn Magnússon.

Þegar hafa verið gefin út sex  tölublöð á vefnum og ritrýndar greinar 
árganganna 2005, 2006 og 2007 hafa verið prentaðar og eru fáanlegar hjá 
Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og  bókasöfnum. 
Veftímaritið gegnir fjölþættu hlutverki fyrir íslenska stjórnmálafræði. Í 
því er ritrýndur hluti sem gegnir hlutverki fræðitímarits í stjórnmála- og 
stjórnsýslufræðum, en slíkt rit var ekki til staðar áður. Með því er 
stjórnmála- og stjórnsýslufræðingum ogöðrum þeim er skrifa um þau 
viðfangsefni gefinn kostur á að gera rannsóknir sínar aðgengilegar og auka 
þannig fræðilega umfjöllun. Almennu greinarnar fjalla um sömu 
viðfangsefni, en eru opinn vettvangur.  Í vefritinu eru eftirtaldir 
efnisflokkar; ritrýndar fræðigreinar, greinar almenns eðlis, bókadómar, 
frásagnir af stærri rannsóknarverkefnum kennara, útdrættir úr 
lokaritgerðum háskólanema í stjórnmálafræðideild, stjórnmála- og 
stjórnsýslufræðingatal, upplýsingar um opna fundi og málþing o.fl. Félag 
stjórnmálafræðinga og Félag stjórnsýslufræðinga hafa  einnig heimasvæði 
sitt á vefsvæðinu. 


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20081002/ee140f23/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list