Bestu kveðjur

Margrét S. Björnsdóttir

Minnum á fresti í nóvember til
að skila greinum í desember-tölublað 2008: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit:
www.stjornmalogstjornsysla.is

Ágætu kennarar í viðakiptafræðideild
HÍ.

Um leið og við bendum þér á vefrit
okkar um Stjórnmál og stjórnsýslu, sem er öllum opið á netinu viljum við
minna á næsta útgáfudag ( 10.-15. desember 2008) og skilafresti fyrir greinar
í tímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla- veftímarit. Eru allir fræði- og fagmenn
sem fást við efni er tengjast stjórnmálum eða stjórnsýslu hvattir til að
íhuga að nýta sér þennan vettvang. Skilafrestur fyrir ritrýndar greinar
er 1. nóvember nk. (lengd 6-10 þús. orð), en greinar almenns eðlis 20.
nóvember (lengd 4-10 þús. orð). Allt efni vefritsins og leiðbeiningar
til höfunda má sjá á: www.stjornmalogstjornsysla.is

Samkvæmt mati Rannsóknasviðs H.Í.
nær tímaritið fyrir ritrýndu greinarnar 1. flokki í þeirra mati:”1. flokkur:
Fagleg ritstjórn, stífar formlegar kröfur, ítarleg fræðileg ritrýni (mögulegt
mat á greinum m.v. skala kjaranefndar 10 stig).”

Ritstjórar ritrýnda hluta tímaritsins
eru Arnar Þór Másson, MSc. og Dr. Gunnar Helgi Kristinsson. Efni má senda
ritstjórum á tölvupóstfang veftímaritsins er stogst@hi.is
Sjá nánari leiðbeiningar um uppsetningu og frágang efnis á vef tímaritsins:
www.stjornmalogstjornsysla.is.

Með bestu kveðjum frá ritstjórn,

Arnar Þór Másson

Gunnar Helgi Kristinsson

Haukur Arnþórsson vefritstjóri

Margrét S. Björnsdóttir.

Í ráðgefandi ritstjórn eru þau
Auðunn Arnórsson, Baldur Þórhallsson, Birgir Hermannsson, Brynhildur Ólafsdóttir,
Davíð Logi Sigurðsson, Eiríkur Bergmann Eiríksson, Grétar Þór Eyþórsson,
Guðmundur Heiðar Frímannsson, Guðni Th. Jóhannesson, Gústaf Adolf Skúlason,
Gylfi A. Dahlmann, Halldór Grönvold, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Hannes
H. Gissurarson, Helga Jónsdóttir, Helgi Skúli Kjartansson, Indriði H. Indriðason,
Jóhann M. Hauksson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Magnús Pétursson, Ólafur Þór
Gylfason, Ólafur Þ. Harðarson, Ólafur Ísleifsson, Ólafur Þ. Stephensen,
Óli Jón Jónsson, Ómar H. Kristmundsson, Róbert Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir,
Stefanía Óskarsdóttir, Steinunn Halldórsdóttir, Svala Ísfeld Ólafsdóttir,
Svanborg Sigmarsdóttir, Svandís Nína Jónsdóttir, Trausti Fannar Valsson
og Þorsteinn Magnússon.

Þegar hafa verið gefin út sex
tölublöð á vefnum og ritrýndar greinar árganganna 2005, 2006 og 2007
hafa verið prentaðar og eru fáanlegar hjá Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum
og bókasöfnum.

Veftímaritið gegnir fjölþættu hlutverki
fyrir íslenska stjórnmálafræði. Í því er ritrýndur hluti sem gegnir hlutverki
fræðitímarits í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum, en slíkt rit var ekki
til staðar áður. Með því er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingum ogöðrum
þeim er skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera rannsóknir sínar
aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu greinarnar fjalla
um sömu viðfangsefni, en eru opinn vettvangur. Í vefritinu eru eftirtaldir
efnisflokkar; ritrýndar fræðigreinar, greinar almenns eðlis, bókadómar,
frásagnir af stærri rannsóknarverkefnum kennara, útdrættir úr lokaritgerðum
háskólanema í stjórnmálafræðideild, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingatal,
upplýsingar um opna fundi og málþing o.fl. Félag stjórnmálafræðinga og
Félag stjórnsýslufræðinga hafa einnig heimasvæði sitt á vefsvæðinu.