[Vid-stund] Í dag síðdegis: Til kennara viðsk. og hagfr.deild: Þér er boðið miðvikudag- Opnun desemberheftis vefrits um Stjórnmál og stjórnsýslu- utanríkis- og öryggisstefna Ísld. ofl. á dagskrá

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Wed Dec 17 09:30:59 GMT 2008


Gaman væri að sjá þig síðdegis í dag miðvikudag kl. 16.30 í Odda 101, 
samkoma og umræður um þætti í íslenskri utanríkis- og öryggisstefnu og 
móttaka á eftir í tilefni af útkomu desemberheftis vefritsins Stjórnmál og 
stjórnsýsla.
Vinsamlegast skráðu þátttöku þína hér ef þú þiggur boðið: 
http://stjornsyslustofnun.hi.is/page/mottaka


Ágæti samstarfmaður.

Desemberhefti vefrits um Stjórnmál og stjórnsýslu; 
www.stjornmalogstjornsysla.is verður opnað nk. miðvikudag. Af því tilefni 
bjóðum við þér til síðdegissamkomu, þar sem tveir höfundanna munu kynna 
stuttlega og ræða við gesti um efni greina sinna; 
Hilmar Þór Hilmarsson dósent við viðskipta- og raunvísindadeild  Háskólans 
á Akureyri mun segja frá greininni; Private Sector Investments from Small 
States in Emerging Markets: Can International Financial Institutions Help 
Handle the Risks? ...og ræða spurninguna hvort Íslendingar hafi vanrækt 
þátttöku í alþjóðafjármálastofnunum, sem takmarki nú möguleika þeirra í 
erlendum fjárfestingum. 
Silja Bára Ómarsdóttir aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands 
mun einnig kynna stuttlega grein sína;  Öryggissjálfsmynd Íslands - Umræða 
um varnarmála- og almannavarnalög á Alþingi vorið 2008...þar sem hún 
skoðar ma. þann skilning á öryggisstefnu Íslands sem birtist í ræðum 
stjórnmálamanna við setningu áðurnefndra laga vorið 2008. Hún spyr hvort 
sá skilningur sé í samræmi við strauma og stefnur í alþjóða- og 
öryggismálum í heiminum? 

Að loknum erindum þeirra og umræðum ca. kl. 17.30 bjóðum við ykkur til 
móttöku í fundarherbergi Odda á 1. hæð. 


Hilmar Þór Hilmarsson, er dósent við Háskólann á Akureyri. Hann lauk cand. 
oecon. prófi  í hagfræði frá Háskóla Íslands 1987, M.A. í sömu grein frá 
New York University 1989, Ph.D. í opinberri stjórnsýslu og þróunarhagfræði 
frá American University í Washington, D.C. 1992.
Silja Bára Ómarsdóttir er aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla 
Íslands, þar sem hún kennir m.a. alþjóðastjórnmál og samningatækni. Hún er 
í leyfi frá störfum sem forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands 
og stundar meðfram kennslu doktorsnám í alþjóðasamskiptum við University 
of Southern California. Lauk áður MA-gráðu frá sama skóla og BA-gráðu (með 
láði) frá Lewis & Clark College í Portland, Oregon. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20081217/4e9d199d/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list