Gaman væri að sjá þig síðdegis
í dag miðvikudag kl. 16.30 í Odda 101, samkoma og umræður um þætti í íslenskri
utanríkis- og öryggisstefnu og móttaka á eftir í tilefni af útkomu desemberheftis
vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla.

Vinsamlegast skráðu þátttöku
þína hér ef þú þiggur boðið: http://stjornsyslustofnun.hi.is/page/mottaka

Ágæti samstarfmaður.

Desemberhefti vefrits um
Stjórnmál og stjórnsýslu; www.stjornmalogstjornsysla.is verður
opnað nk. miðvikudag. Af því tilefni bjóðum við þér til síðdegissamkomu,
þar sem tveir höfundanna munu kynna stuttlega og ræða við gesti um efni
greina sinna;

Hilmar Þór Hilmarsson dósent við
viðskipta- og raunvísindadeild  Háskólans á Akureyri mun segja frá
greininni; Private Sector Investments from Small States in Emerging
Markets: Can International Financial Institutions Help Handle the Risks?
...og ræða spurninguna hvort Íslendingar hafi vanrækt þátttöku í alþjóðafjármálastofnunum,
sem takmarki nú möguleika þeirra í erlendum fjárfestingum.

Silja Bára Ómarsdóttir aðjúnkt
við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands mun einnig kynna stuttlega grein
sína;  Öryggissjálfsmynd Íslands - Umræða um varnarmála- og
almannavarnalög á Alþingi vorið 2008...þar sem hún skoðar
ma. þann skilning á öryggisstefnu Íslands sem birtist í ræðum stjórnmálamanna
við setningu áðurnefndra laga vorið 2008. Hún spyr hvort sá skilningur
sé í samræmi við strauma og stefnur í alþjóða- og öryggismálum í heiminum?

Að loknum erindum þeirra og umræðum
ca. kl. 17.30 bjóðum við ykkur til móttöku í fundarherbergi Odda á 1. hæð.

Hilmar Þór Hilmarsson, er dósent
við Háskólann á Akureyri. Hann lauk cand. oecon. prófi  í hagfræði
frá Háskóla Íslands 1987, M.A. í sömu grein frá New York University 1989,
Ph.D. í opinberri stjórnsýslu og þróunarhagfræði frá American University
í Washington, D.C. 1992.

Silja Bára Ómarsdóttir
er aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, þar sem hún kennir
m.a. alþjóðastjórnmál og samningatækni. Hún er í leyfi frá störfum sem
forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og stundar meðfram kennslu
doktorsnám í alþjóðasamskiptum við University of Southern California. Lauk
áður MA-gráðu frá sama skóla og BA-gráðu (með láði) frá Lewis & Clark
College í Portland, Oregon.