[Vid-stund] Baugur Group: Gestafyrirlestur á föstudag.

Áshildur Bragadóttir ashildb at hi.is
Tue Mar 27 13:15:41 GMT 2007


Baugur Group: Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri Retail fjárfestinga hjá 
Baugi Group verður með gestafyrirlestur á vegum viðskipta- og 
hagfræðideildar Háskóla Íslands föstudaginn 30. mars kl. 14-15 í sal H3 í 
Háskólabíói. Allir velkomnir.  

Gunnar Sigurðsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í 
Bretlandi frá árinu 2004, tók í byrjun árs við stöðu framkvæmdastjóra 
smásöluhluta samstæðunnar í Bretlandi, Danmörku og á Íslandi. Gunnar hóf 
störf hjá Baugi árið 2003, þá sem fjármálastjóri fyrirtækisins. Áður 
starfað Gunnar í bankageiranum í átta ár, síðast sem forstöðumaður 
alþjóðlegra lánaveitinga og sambankalána hjá Íslandsbanka. Gunnar er með 
MBA próf frá Pennsylvania State University og starfaði að loknu námi hjá 
Bank One bankanum í Bandaríkjunum í fjögur ár.

Baugur Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag með áherslu á fjárfestingar 
í þjónustu, smásöluverslun og fasteignarekstur á Íslandi og í 
Norður-Evrópu. Hjá fyrirtækjum sem að Baugur er kjölfestufjárfestir í 
starfa nú um 70 þúsund manns í yfir 3.700 verslunum. Velta félaga Baugs 
Group nam á síðasta rekstrarári um 950 milljörðum króna.

Rekstur Retail sviðs hjá Baugi Group byggist á þeirri stefnu að kaupa 
fyrirtæki með sterk vörumerki sem hafa góða vaxtar- og þróunarmöguleika 
innan og utan heimamarkaða sinna.
Meðal helstu eigna samstæðunnar eru Mosaic Fashions Ltd, sem á og 
starfrækir sex kvenfatamerki á borð við Karen Millen og Oasis auk þó 
nokkurra skóvörumerkja eins og Nine West og Pied a Terre; 
matvöruverslanakeðjan Iceland; leikfangaverslanir Hamleys; 
matvælaþjónustan Woodward; skartgripakeðjurnar Goldsmiths og Mappin & 
Webb; tískukeðjurnar MK One og Jane Norman, heilsuvörukeðjan Julian 
Graves; te- og kaffiverslanir Whittard of Chelsea, stórverslanakeðjurnar 
House of Fraser og Magasin du Nord; og stórverslanirnar Illum og Hagar, 
sem er stærsti smásöluaðil Islands í matvæla- og sérvörum. Meðal verslana 
í eigu Haga eru Hagkaup, Bónus, Debenhams og Topshop. Þess utan starfrækir 
Baugur Group Venture Business Unit, sem einbeitir sér að 
viðskiptatækifærum í tísku-, lúxusvöru- og neytendavörugeirunum en 
einingin hefur fjárfest í vörumerkjum á borð við Matthew Williamson, 
Steinunn og PPQ. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070327/94bd4562/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list