Baugur Group: Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri Retail
fjárfestinga hjá Baugi Group verður með gestafyrirlestur á vegum viðskipta-
og hagfræðideildar Háskóla Íslands föstudaginn 30. mars kl. 14-15 í sal
H3 í Háskólabíói. Allir velkomnir.

Gunnar Sigurðsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs
í Bretlandi frá árinu 2004, tók í byrjun árs við stöðu framkvæmdastjóra
smásöluhluta samstæðunnar í Bretlandi, Danmörku og á Íslandi. Gunnar hóf
störf hjá Baugi árið 2003, þá sem fjármálastjóri fyrirtækisins. Áður starfað
Gunnar í bankageiranum í átta ár, síðast sem forstöðumaður alþjóðlegra
lánaveitinga og sambankalána hjá Íslandsbanka. Gunnar er með MBA próf frá
Pennsylvania State University og starfaði að loknu námi hjá Bank One bankanum
í Bandaríkjunum í fjögur ár.

Baugur Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag með áherslu á fjárfestingar
í þjónustu, smásöluverslun og fasteignarekstur á Íslandi og í Norður-Evrópu.
Hjá fyrirtækjum sem að Baugur er kjölfestufjárfestir í starfa nú um 70
þúsund manns í yfir 3.700 verslunum. Velta félaga Baugs Group nam á síðasta
rekstrarári um 950 milljörðum króna.

Rekstur Retail sviðs hjá Baugi Group byggist á þeirri stefnu að kaupa fyrirtæki
með sterk vörumerki sem hafa góða vaxtar- og þróunarmöguleika innan og
utan heimamarkaða sinna.

Meðal helstu eigna samstæðunnar eru Mosaic Fashions Ltd, sem á og starfrækir
sex kvenfatamerki á borð við Karen Millen og Oasis auk þó nokkurra skóvörumerkja
eins og Nine West og Pied a Terre; matvöruverslanakeðjan Iceland; leikfangaverslanir
Hamleys; matvælaþjónustan Woodward; skartgripakeðjurnar Goldsmiths og Mappin
& Webb; tískukeðjurnar MK One og Jane Norman, heilsuvörukeðjan Julian
Graves; te- og kaffiverslanir Whittard of Chelsea, stórverslanakeðjurnar
House of Fraser og Magasin du Nord; og stórverslanirnar Illum og Hagar,
sem er stærsti smásöluaðil Islands í matvæla- og sérvörum. Meðal verslana
í eigu Haga eru Hagkaup, Bónus, Debenhams og Topshop. Þess utan starfrækir
Baugur Group Venture Business Unit, sem einbeitir sér að viðskiptatækifærum
í tísku-, lúxusvöru- og neytendavörugeirunum en einingin hefur fjárfest
í vörumerkjum á borð við Matthew Williamson, Steinunn og PPQ.