[Vid-stund] Lærdómsfyrirtækið - fyrirtæki framtíðarinnar?
Áshildur Bragadóttir
ashildb at hi.is
Fri Mar 16 15:33:49 GMT 2007
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson lektor heldur fyrirlesturinn Lærdómsfyrirtækið
- fyrirtæki framtíðarinnar? í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands þriðjudaginn 20. mars kl. 12.15. Málstofan er haldin í
Odda stofu 101 og er opin öllum.
Stundum er sagt að lærdómur sé forsenda breytinga innan fyrirtækja.
Hugtakið lærdómsfyrirtækið hefur verið áberandi innan stjórnunarfræðanna
síðustu misseri. Almennt gengur hugmyndafræði lærdómsfyrirtækisins út á
það að árangursrík fyrirtæki verða að vera aðlögunarhæf og geta lært að
bregðast við breytingum í umhverfinu, slíkt sé forsenda vaxtar og
varanlegs samkeppnisforskot.
Í þessari málstofu verður greint frá þróun og tilurð hugmyndafræðinnar um
lærdómsfyrirtækið, greint frá helstu einkennum lærdómsfyrirtækja og varpað
ljósi á hvernig fyrirtæki geta hagað starfsemi sinni þannig að þau geti
talist til lærdómafyrirtækja.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070316/d01fc5e7/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list