Gylfi Dalmann Aðalsteinsson lektor heldur
fyrirlesturinn Lærdómsfyrirtækið - fyrirtæki framtíðarinnar? í málstofu
viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands þriðjudaginn 20. mars kl.
12.15. Málstofan er haldin í Odda stofu 101 og er opin öllum.

Stundum er sagt að lærdómur sé forsenda breytinga innan fyrirtækja. Hugtakið
lærdómsfyrirtækið hefur verið áberandi innan stjórnunarfræðanna síðustu
misseri. Almennt gengur hugmyndafræði lærdómsfyrirtækisins út á það að
árangursrík fyrirtæki verða að vera aðlögunarhæf og geta lært að bregðast
við breytingum í umhverfinu, slíkt sé forsenda vaxtar og varanlegs samkeppnisforskot.

Í þessari málstofu verður greint frá þróun og tilurð hugmyndafræðinnar
um lærdómsfyrirtækið, greint frá helstu einkennum lærdómsfyrirtækja og
varpað ljósi á hvernig fyrirtæki geta hagað starfsemi sinni þannig að þau
geti talist til lærdómafyrirtækja.