[Vid-stund] Evrópa: Minni vinna, meiri vöxtur

Áshildur Bragadóttir ashildb at hi.is
Mon Mar 5 11:16:17 GMT 2007


Þorvaldur Gylfason prófessor heldur fyrirlesturinn Evrópa: Minni vinna, 
meiri vöxtur í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands 
þriðjudaginn 6. mars kl. 12.15. Málstofan er haldin í Odda stofu 101 og er 
öllum opin. 
Peningar eru ekki allt. Þótt landsframleiðsla á mann sé enn sem jafnan 
fyrr meiri í Bandaríkjunum en í mörgum Evrópulöndum, er landsframleiðsla á 
hverja vinnustund nú orðin meiri í nokkrum Evrópulöndum en í 
Bandaríkjunum. Þetta stafar af því, að margir Evrópumenn kjósa ? og hafa 
efni á! ? að vinna minna með því til dæmis að fara fyrr á eftirlaun en 
margir Bandaríkjamenn. Líffræðilegar staðtölur um lífskjör reistar á 
mælingum á líkamshæð fólks í ólíkum löndum segja svipaða sögu. Undangengna 
áratugi hefur tognað svo úr fullvöxnum Evrópumönnum, að þeir eru að 
meðtali orðnir mun hærri í loftinu en Bandaríkjamenn ? og voru þó fyrir 
einum mannsaldri talsvert lægri að vexti en Bandaríkjamenn. Við þetta 
bætist, að Evrópumenn vinna nú mun færri stundir á ári en Bandaríkjamenn. 
Meira umburðarlyndi gagnvart ójöfnuði í skiptingu auðs og tekna í 
Bandaríkjunum en í Evrópu kann að hafa tekið sinn toll. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070305/77c101ab/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list