<br><font size=3><b>Þorvaldur Gylfason prófessor heldur fyrirlesturinn
Evrópa: Minni vinna, meiri vöxtur í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands þriðjudaginn 6. mars kl. 12.15. Málstofan er haldin í Odda
stofu 101 og er öllum opin.</b> <br>
Peningar eru ekki allt. Þótt landsframleiðsla á mann sé enn sem jafnan
fyrr meiri í Bandaríkjunum en í mörgum Evrópulöndum, er landsframleiðsla
á hverja vinnustund nú orðin meiri í nokkrum Evrópulöndum en í Bandaríkjunum.
Þetta stafar af því, að margir Evrópumenn kjósa &#8211; og hafa efni á! &#8211; að
vinna minna með því til dæmis að fara fyrr á eftirlaun en margir Bandaríkjamenn.
Líffræðilegar staðtölur um lífskjör reistar á mælingum á líkamshæð fólks
í ólíkum löndum segja svipaða sögu. Undangengna áratugi hefur tognað svo
úr fullvöxnum Evrópumönnum, að þeir eru að meðtali orðnir mun hærri í loftinu
en Bandaríkjamenn &#8211; og voru þó fyrir einum mannsaldri talsvert lægri að
vexti en Bandaríkjamenn. Við þetta bætist, að Evrópumenn vinna nú mun færri
stundir á ári en Bandaríkjamenn. Meira umburðarlyndi gagnvart ójöfnuði
í skiptingu auðs og tekna í Bandaríkjunum en í Evrópu kann að hafa tekið
sinn toll. </font><font size=2 face="sans-serif"><br>
</font>