[Vid-stund] Áhrif samkeppni á væntingar, skynjun og tryggð við þjónustutilboð
Áshildur Bragadóttir
ashildb at hi.is
Thu Feb 15 18:59:41 GMT 2007
Málstofa viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands
Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12.15 í Odda stofu 101
Þórhallur Guðlaugsson dósent heldur fyrirlesturinn Áhrif samkeppni á
væntingar, skynjun og tryggð við þjónustutilboð í málstofu viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Íslands. Málstofan er opin öllum.
Fyrirlesturinn byggir á tveimur könnunum sem gerðar voru meðal annars árs
nemenda við Háskóla Íslands vorið 2005 og 2006. Markmið rannsóknarinnar er
að leggja mat á hvort aukið val í formi samkeppni hafi áhrif á væntingar
nemenda til þjónustuþátta og skynjun þeirra á gæðum veittrar þjónustu.
Niðurstöður benda til þess að væntingar nemenda sem eru í þeim deildum
Háskóla Íslands sem búa við hvað mesta samkeppni séu ekki í stórum atriðum
frábrugðnar væntingum nemenda annarra deilda skólans. Hins vegar er
skynjun þeirra á frammistöðu þjónustu nokkuð frábrugðin og nánast alltaf á
þann veg að sú einkunn sem samkeppnisdeildirnar fá er lægri en sú einkunn
sem aðrar deildir fá. Þetta bendir til þess að aukið val, þ.e. samkeppni,
hafi þau áhrif að umburðarlyndi verður minna þar sem ekkert bendir til
þess að raunveruleg frammistaða sé lakari hjá samkeppnisdeildunum en
hinum.
Niðurstöður benda ennfremur til þess að markaðsstaða Háskóla Íslands sé að
breytast mikið, frá því að vera á seljandamarkaði, þar sem
samningskrafturinn liggur hjá skólanum, yfir í að vera á kaupendamarkaði,
þar sem samningskrafturinn liggur hjá nemendunum. Þessi breyting kallar á
breytingar í starfi skólans, ekki síst því sem snýr að samskiptum og
þjónustu við nemendur.
Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir,
Kynningarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070215/fe0459a1/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list