Málstofa viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands

Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12.15 í
Odda stofu 101

Þórhallur Guðlaugsson dósent heldur fyrirlesturinn
Áhrif samkeppni á væntingar, skynjun og tryggð við þjónustutilboð í málstofu
viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands. Málstofan er opin öllum.

Fyrirlesturinn byggir á tveimur könnunum sem gerðar voru meðal annars árs
nemenda við Háskóla Íslands vorið 2005 og 2006. Markmið rannsóknarinnar
er að leggja mat á hvort aukið val í formi samkeppni hafi áhrif á væntingar
nemenda til þjónustuþátta og skynjun þeirra á gæðum veittrar þjónustu.

Niðurstöður benda til þess að væntingar nemenda sem eru í þeim deildum
Háskóla Íslands sem búa við hvað mesta samkeppni séu ekki í stórum atriðum
frábrugðnar væntingum nemenda annarra deilda skólans. Hins vegar er skynjun
þeirra á frammistöðu þjónustu nokkuð frábrugðin og nánast alltaf á þann
veg að sú einkunn sem samkeppnisdeildirnar fá er lægri en sú einkunn sem
aðrar deildir fá. Þetta bendir til þess að aukið val, þ.e. samkeppni, hafi
þau áhrif að umburðarlyndi verður minna þar sem ekkert bendir til þess
að raunveruleg frammistaða sé lakari hjá samkeppnisdeildunum en hinum.

Niðurstöður benda ennfremur til þess að markaðsstaða Háskóla Íslands sé
að breytast mikið, frá því að vera á seljandamarkaði, þar sem samningskrafturinn
liggur hjá skólanum, yfir í að vera á kaupendamarkaði, þar sem samningskrafturinn
liggur hjá nemendunum. Þessi breyting kallar á breytingar í starfi skólans,
ekki síst því sem snýr að samskiptum og þjónustu við nemendur.

Með kærri kveðju,

Áshildur Bragadóttir,

Kynningarstjóri

Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands

s. 525 4536 / 862 9680

ashildb@hi.is

http://www.vidskipti.hi.is