[Vid-stund] Stefna og samkeppnishæfni: Málstofa á þriðjudag

Áshildur Bragadóttir ashildb at hi.is
Thu Feb 1 21:53:31 GMT 2007


Runólfur Smári Steinþórsson prófessor flytur fyrirlesturinn Stefna og 
samkeppnishæfni í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands 
þriðjudaginn 6. febrúar kl. 12.15. Málstofan er haldin í Odda stofu 101 og 
er opin öllum. 

Í erindinu verður fjallað um hugtökin stefnu og samkeppnishæfni. Varðandi 
stefnuhugtakið verður fyrst farið yfir þróunina í fræðunum þegar fjallað 
er um það og síðan verður athyglin bundin við umfjöllun og skilgreiningar 
Michaels Porters á hugtakinu. Einnig verður varpað ljósi á umfjöllun 
Michaels Porters um samkeppnishæfni. Að endingu verður leitast við að 
tvinna þessi hugtök saman og umræðan sett í samhengi við rannsóknir á 
vegum Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands á útrás íslenskra fyrirtækja 
og væntanlega ráðstefnu sem MBA námið og viðskiptafræðingar MBA frá 
Háskóla Íslands sem ber yfirskriftina The Roots of Competitiveness. 

Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir, 
Kynningarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070201/6d6dc586/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list