Runólfur Smári Steinþórsson prófessor flytur fyrirlesturinn Stefna og samkeppnishæfni
í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands þriðjudaginn 6.
febrúar kl. 12.15. Málstofan er haldin í Odda stofu 101 og er opin öllum.

Í erindinu verður fjallað um hugtökin stefnu og samkeppnishæfni. Varðandi
stefnuhugtakið verður fyrst farið yfir þróunina í fræðunum þegar fjallað
er um það og síðan verður athyglin bundin við umfjöllun og skilgreiningar
Michaels Porters á hugtakinu. Einnig verður varpað ljósi á umfjöllun Michaels
Porters um samkeppnishæfni. Að endingu verður leitast við að tvinna þessi
hugtök saman og umræðan sett í samhengi við rannsóknir á vegum Viðskiptafræðistofnunar
Háskóla Íslands á útrás íslenskra fyrirtækja og væntanlega ráðstefnu sem
MBA námið og viðskiptafræðingar MBA frá Háskóla Íslands sem ber yfirskriftina
The Roots of Competitiveness.

Með kærri kveðju,

Áshildur Bragadóttir,

Kynningarstjóri

Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands

s. 525 4536 / 862 9680

ashildb@hi.is

http://www.vidskipti.hi.is<tt>

</tt>