[Vid-stund] Úrræði í prófum fyrir erlenda stúdenta

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Thu Nov 16 14:27:13 GMT 2006


Ágætu kennarar.

Ef einhverjir útlendingar eru í námskeiðum ykkar sem kennd eru á íslensku 
þá mega þessir nemendur fá lengri próftíma og hafa orðabækur í prófinu.

Vinsaml. biðjið þessa nemendur að gefa sig fram við skrifstofu 
deildarinnar sem fyrst svo hægt sé að koma uppl. um nöfn þeirra til 
prófstjóra.

Annars lenda þessir nemendur í hremmingum á prófstað, orðabækurnar teknar 
af þeim og þeir fá ekki lengdan próftíma.

Ath. ekki er verið að tala um erlenda nemendur sem sækja námskeið þar sem 
prófið er lagt fyrir á ensku.
Kv.
KK
















Kristín Klara Einarsdóttir
skrifstofustjóri
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands

----- Forwarded by Kristín Klara Einarsdóttir/HI/IS on 16.11.2006 14:23 
-----

Magnús Stephensen <msteph at hi.is> 
16.11.2006 09:11

To
Magnús Stephensen <msteph at hi.is>
cc

Subject
[Tilkynning] Úrræði í prófum fyrir erlenda stúdenta







Ágætu skrifstofustjórar,
ég vildi minna á að þær deildir sem heimila sérstök úrræði fyrir erlenda 
stúdenta í prófum (lengdan próftíma, orðabækur osfrv) þurfa að senda 
upplýsingar um þá til Sveins Klausen á prófstjórn. Námsráðgjöf ber ekki 
ábyrgð á sérstökum úrræðum fyrir erlenda stúdenta nema þeir eigi við 
einhverja fötlun að stríða.
Bestu kveðjur,
Magnús M. Stephensen
Námsráðgjöf HÍ

-----------------------------------------------------
Skilaboð þessi voru send úr tilkynningarkerfi Uglu.
Hópar sem fá þetta skeyti:
Námsráðgjöf, Skrifstofustjórar
-----------------------------------------------------


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20061116/6d75178f/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list