[Vid-stund] Málstofa kl. 12.20 í dag: Rannsóknir á íslenska hlutabréfamarkaðinum

Áshildur Bragadóttir ashildb at hi.is
Wed Nov 15 08:34:17 GMT 2006


Miðvikudaginn 15. nóvember, kl. 12.20, heldur Gylfi Magnússon dósent við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands fyrirlesturinn "Rannsóknir á
íslenska hlutabréfamarkaðinum" í Odda stofu 101.

Þótt hlutafélög hafi þekkst á Íslandi allt frá dögum innréttinganna varð
ekki til skipulegur markaður með hlutabréf hérlendis fyrr en fyrir um
tveimur áratugum, löngu síðar en í öðrum vestrænum ríkjum. Tilraunir voru
gerðar til að koma á markaði fyrr en þær runnu allar út í sandinn. Þótt
Íslendingar hafi byrjað síðar en aðrir virðist óhætt að fullyrða að þegar
af stað var farið hafi hraðinn verið meiri en hjá flestum öðrum. Nú er svo
komið að íslenski hlutabréfamarkaðurinn telst á flesta mælikvarða vera
orðinn svipaður og markaðir í nágrannalöndunum og jafnvel stærri þegar
horft er til markaðsvirðis og veltu í hlutfalli við stærð hagkerfisins.

Í fyrirlestrinum er ætlunin að gera nokkra grein fyrir rannsóknum ýmissa
háskólamanna á markaðinum fyrir hlutabréf á Íslandi og helstu niðurstöðum
þeirra. Samantektin hefur verið unnin vegna bókar um efnið sem Gylfi
Magnússon vinnur nú að.

Allir velkomnir.






More information about the Vid-stund mailing list