[Vid-stund] David Cairns með fyrirlestur á mánudag

Ashildur Bragadottir ashildb at hi.is
Fri May 27 10:24:46 BST 2005


Heil og sæl.
 
Mánudaginn 30. maí, kl. 12.00, verður David Cairns með fyrirlestur á
okkar vegum í Lögbergi stofu 101. Ég vil hvetja deildarmenn til að mæta
á fyrirlesturinn, og minni um leið á fyrirlestur Michael Power kl. 12.00
í Odda 101 í dag. 
 
Bestu kveðjur, 
Áshildur.
 
David Cairns: Fortíð, nútíð og framtíð alþjóðlegra reikningsskilastaðla
 
Opinn fyrirlestur mánudaginn 30. maí
kl. 12.00 í Lögbergi stofu 101
 
 
 
Dr. David Cairns, einn helsti sérfræðingur heims í reikningsskilastöðlum
alþjóðlega reikningsskilaráðsins og prófessor í endurskoðun við London
School of Economics, heldur fyrirlestur á vegum viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Íslands mánudaginn 30. maí, kl. 12.00, í
Lögbergi stofu 101. Fyrirlesturinn er opinn öllum.

Í fyrirlestrinum mun David Cairns meðal annars fjalla um fortíð, nútíð
og framtíð reikningsskilastaðla alþjóðlega reikningsskilaráðsins,
goðsagnir og veruleika, og áhrif alþjóðlegra reikningsskilastaðla á
rannsóknir og kennslu. 
Cairns hefur yfir 20 ára reynslu og er talinn einn helsti sérfræðingur
heims í reikningsskilastöðlum alþjóðlega reikningsskilaráðsins
(IAS/IFRS). Ásamt því að vera prófessor í endurskoðun við London School
of Economics veitir hann fyrirtækjum, endurskoðunarfyrirtækjum,
fjárfestingarbönkum, þróunarstofnunum og stjórnsýslustofnunum, ráðgjöf
og þjálfun í notkun alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Hann er höfundur
bókarinnar International Accounting Standard Survey og hefur skrifað
margar greinar um tengt efni. Allar nánari upplýsingar um Cairns er að
finna á heimasíðu hans  <http://www.cairns.co.uk/> www.cairns.co.uk
 
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050527/f8b6dd32/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list