[Vid-stund] Michael Power með fyrirlestur á morgun.

Ashildur Bragadottir ashildb at hi.is
Thu May 26 10:11:26 BST 2005


Á morgun mun Michael Power, prófessor í reikningshaldi við London School
of Economics, vera með fyrirlestur á vegum deildarinnar um vöxt
eftirlitsiðnaðarins og aukið umfang endurskoðunar. Fyrirlesturinn er
haldinn í Odda stofu 101, kl. 12.00.
Ég vil hvetja kennara og starfsmenn til að mæta á fyrirlesturinn. 
 
Með kveðju,
Áshildur.
 
 
„Auditability: A Theory?”
 
Opinn fyrirlestur föstudaginn 27. maí
kl. 12.00 í Odda stofu 101
 
Í haust mun viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands bjóða í fyrsta
sinn upp á meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun (M.Acc.). Af því
tilefni munu virtir erlendir gestir vera með opna fyrirlestra um
reikningshald og endurskoðun á næstu mánuðum. 
Fyrsti erlendi gestur deildarinnar er Michael Power, prófessor í
reikningshaldi við London School of Economics. Hann mun halda
fyrirlestur undir heitinu "Auditability: A Theory?" föstudaginn 27. maí
kl. 12.00 í Odda stofu 101. Í fyrirlestrinum mun hann m.a. fjalla um
aukið umfang endurskoðunar og vöxt eftirlitsiðnaðarins. Allir velkomnir.


Á síðustu tveimur árum hefur umfang endurskoðunar vaxið hratt í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Til viðbótar við hina hefðbundnu
fjárhagsendurskoðun hafa komið fram ótal ný svið endurskoðunar, s.s.
innan heilbrigðismála, tæknigeirans, stjórnsýslunnar, umhverfismála,
gæðamála og menntamála. Hver er ástæðan? Hvers vegna fjárfesta þjóðfélög
sífellt meira í eftirlitsiðnaðinum og hvers vegna verða æ fleiri
einstaklingar viðfangsefni formlegra úttekta? 
Endurskoðendageirinn staðhæfir að þessi endurskoðunarbylgja stafi af
sívaxandi kröfu samfélagsins um ábyrgð og eftirlit. Innra eftirlit er
opinberlega gert hátt undir höfði í stjórnunaraðferðum nútímans og
frammistaða einstaklinga jafn sem fyritækja er í auknu mæli skoðuð í
ljósi skilgreindra mælikvarða og endurskoðuð. 
Michael Power heldur því fram að þessar nýju kröfur og væntingar falli
illa að tækjum og tólum endurskoðenda. Auk þess sem ábyrgðin á
vottunarstarfi þeirra er afar þokukennd má ætla að þeirra eigið
gildismat geti óviljandi truflað starfsemi fyrirtækjanna sem þeir
endurskoða. 
 
Michael Power er prófessor í reikningshaldi við London School of
Economics og hefur verið háskólakennari í reikningshaldi og fjármálum
frá árinu 1987. Hann hefur einnig starfað sem fjárhagsendurskoðandi hjá
Deloitte Haskins and Sells, þar sem hann öðlaðist réttindi sem löggiltur
endurskoðandi. Hann er meðlimur í Institute of Chartered Accountants í
Englandi og Wales og hefur verið félagi í Wissenschaftskolley í Berlín.
Árið 1989 var hann gerður að félaga (associated member) í bresku
stofnuninni United Kingdom of Institute of Taxation og frá árinu 1990
hefur hann ferið félagi (associated scholar) evrópsku stofnunarinnar
European Institute of Advanced Studies in Management í Brussel.  
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050526/b28e0d45/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list