[Vid-stund] Opinn fyrirlestur: Vörustjórnun - staða vörubretta í innflutningi og framtíðarhorfur
Ashildur Bragadottir
ashildb at hi.is
Tue May 17 16:01:25 BST 2005
Vörustjórnun - staða vörubretta
í innflutningi og framtíðarhorfur
Opinn fyrirlestur miðvikudaginn 18. maí 2005
kl. 16.30 í Odda stofu 101
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og Vörustjórnunarfélag
Íslands halda opinn fyrirlestur um vörustjórnun miðvikudaginn 18. maí
2005, kl. 16.30, í Odda stofu 101. Ólafur Páll Magnússon mun kynna
meistararitgerð sína Vörustjórnun staða vörubretta í innflutningi og
framtíðarhorfur.
Á síðustu áratugum hefur stór hluti innflutnings til landsins verið með
þeim hætti að vörur eru fluttar á timburbrettum í flutningsgámum, og svo
er enn. Fjallað verður um þessa helstu innflutningsaðferð til landsins
með tilliti til lækkunar kostnaðar og betri nýtingar á gámarými ásamt
öðrum vörustjórnunarlegum áhrifaþáttum. Einnig verður fjallað um
umhverfisþætti og nýjar reglur á því sviði sem þegar eru farnar að hafa
áhrif á alþjóðlegt umhverfi timburbretta.
Fræðilegur grunnur verkefnisins byggist á vörustjórnun, en vörustjórnun
er ungt og ört vaxandi svið innan viðskiptafræðanna. Leitast er við að
tengja saman sterkan fræðilegan grunn og raunaðstæður í atvinnulífinu og
nýtist þar einkar vel, til viðbótar við menntun, starfsreynsla höfundar
úr því alþjóðlega vörustjórnunarumhverfi sem hann hefur starfað í
síðastliðin ár.
Allir velkomnir.
Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir,
Verkefnastjóri kynningarmála
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050517/3e00db57/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list