[Vid-stund] Málstofa í dag: Rannsóknir á ánægju viðskiptafræðinema
Ashildur Bragadottir
ashildb at hi.is
Wed May 11 09:39:11 BST 2005
Rannsóknir á ánægju viðskiptafræðinema
Málstofa miðvikudaginn 11. maí 2005
Snjólfur Ólafsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson,
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
Miðvikudaginn 11. maí 2005, kl. 12.20, verða kynntar rannsóknir á ánægju
viðskiptafræðinema í málstofu Hagfræðistofnunar og
Viðskiptafræðistofnunar. Málstofan er haldin í Öskju, stofu 132.
Snjólfur og Þórhallur ýttu nýlega úr vör formlegu rannsóknarverkefni um
ánægju viðskiptafræðinema. Þetta verkefni byggir á ýmsum rannsóknum
þeirra undanfarin ár sem og áhuga og þekkingu á viðfangsefninu.
Í málstofunni verður gerð grein fyrir rannsóknarverkefninu, bæði
heildarmynd og ýmsum þáttum þess. Rætt verður um rannsóknarspurningarnar
sem snúast mest um að meta ánægju viðskiptafræðinema en einnig leiðir
til að auka hana. Gerð verður grein fyrir spurningalistum sem eru
notaðir í þessum tilgangi víða um heim. Sagt verður frá könnunum sem
gerðar hafa verið í Háskóla Íslands að undanförnu og sýnt brot af
niðurstöðum.
Allir velkomnir.
Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir,
Verkefnastjóri kynningarmála
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050511/2a0bf391/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list