[HFR-keppendur] Kynningarfundur: Æfingar og þjálfun á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur veturinn 2012-2013

Hjólreiðafélag Reykjavíkur hfr at vortex.is
Sun Oct 7 19:39:50 GMT 2012


 


Kynningarfundur: Æfingar og þjálfun á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur
veturinn 2012-2013

	
	

Description: http://hfr.is/img/frettir/1004_0858_12_1.jpg 

Miðvikudaginn 10 október, kl. 20:00 verður haldin kynning á æfingum og
þjálfun á vegum HFR, fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ að Engjavegi
6, í sal C.

Á kynningunni verður kynnt þjálfun fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
í hjólaíþróttinni, en í vetur er ráðgert að bjóða upp á þolpróf, vandað
þjálfunarprógram, sérhæfðar æfingar og ráðleggingar.

Starf æfingahóps HFR verður jafnframt kynnt. HFR heldur áfram samstarfi við
danska hjólaþjálfarann Hans Søndergaard. Farið verður yfir uppbyggingu
þjálfunarinnar, hjólaæfingar og lyftingaæfingar auk tækniæfinga, og
fyrirkomulag þolprófa. Kynntar verða æfingaferð á vegum félagsins, og
keppnisferð til Danmerkur um Hvítasunnu 2013.

Á fundinum verður jafnframt nýr keppnis og æfingabúningur HFR kynntur.

Við hvetjum sem flesta til að mæta og kynna sér starf HFR.

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20121007/6c97beed/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29701 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20121007/6c97beed/attachment-0001.jpe 


More information about the Hfr-keppendur mailing list