[HFR-keppendur] Íslandsmeistaramót í hópstarti 12. ágúst 2012
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
hfr at vortex.is
Thu Aug 9 23:13:34 GMT 2012
Íslandsmeistaramót í hópstarti 12. ágúst 2012
Description: http://hfr.is/img/frettir/0807_1523_29_1.jpg
Félagsheimilið Fólksvangur
Íslandsmeistaramót í hópstarti sunnudaginn 12. ágúst 2012 kl: 10:00
<http://events.reynir.net/?event/&eid=29> Smellið hér til að skrá ykkur
Meistaraflokkar (Opinn flokkur) karla (
<http://hfr.is/images/kort/hval100.jpg> sjá leið á korti smella hér)
Hjólað verður saman frá Félagsheimili Kjalnesinga (
<http://hfr.is/images/kort/felagsheimili.jpg> sjá kort) að
Hvalfjarðarafleggjara þar sem rásmark og endamark verður. Eftir ræsingu er
hjólað að Laxá í Kjós síðan upp Kjósarskarðsveg að keilu þar sem snúið
verður við og hjólað aftur til baka inn á Hvalfjarðarveg og beygt til hægri,
að slétta kaflanum eftir Hvalstöð. Snúið við á keilu og hjólað til baka á
Hvalfjarðarvegi að endamarki, í bakaleiðinni er ekki beygt inn á
Kjósarskarðsvegi.
Meistaraflokkar (Opinn flokkur) kvenna (
<http://hfr.is/images/kort/hval70.jpg> sjá leið á korti smella hér)
A flokkur karla og kvenna, 15-16 ára og 17-18 ára.
Hjólað verður saman frá Félagsheimili Kjalnesinga (sjá kort) að
Hvalfjarðarafleggjara þar sem rásmark og endamark verður. Eftir ræsingu er
hjólað að Laxá í Kjós síðan upp Kjósarskarðsveg að keilu þar sem snúið
verður við og hjólað aftur til baka inn á Hvalfjarðarveg til hægri, að
Fossá þar sem snúið verður á keilu og hjólað til baka á Hvalfjarðarvegi að
endamarki, í bakaleiðinni er ekki beygt inn á Kjósarskarðsvegi.
Hjólasprettur í Hafnarfirði mun grilla ofan í mannskapinn að lokinni keppni
svo allir ná fyrri orku og eins verður dregið úr númerum keppenda í lok
keppni og verða vinningar í boði Hjólaspretts.
Innes býður upp á hið sívinsæla Capri Sonne og Corny orkustangir. Nammi
namm.
Vífilfell mun bjóða upp á orkudrykkinn Poweraid fyrir og eftir keppni enda
veitir ekki af orkunni fyrir þessa keppni
Blómaval svíkur okkur ekki frekar en fyrri daginn og sér um að
Íslandsmeistari karla og kvenna fari örugglega ekki blómalaus heim enda
krýndir sigurvegarar alltaf umvafðir blómahafi.
Flokkar:
Meistaraflokkur (opinn flokkur) karla: 95 km
Meistaraflokkur (opinn flokkur) kvenna: 70 km
A flokkar karla 70 km
A flokkar kvenna: 55 km
15-16 ára, 17-18 ára 70 km
Í meistaraflokki (opinn flokkur) karla og kvenna verður keppt í eftirfarandi
aldursflokkum:
Aldur Karlar
Konur
15-16 ára 70 km
70 km
17-18 ára 70 km
70 km
Meistaraflokkur 95 km
70 km
19-29 ára 95 km
70 km
H-30+ 95 km
70 km
H-40+ 95 km
70 km
H-50+ 95 km
70 km
A flokkur 39 ára og yngri 70 km 55
km
A flokkur 40 ára og eldri 70 km 55
km
Rásröð:
Flokkar verða ræstir út með 2 mínútna millibili í eftirfarandi röð:
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur kvenna
15-16 ára 17-18 ára
A flokkur karla
A flokkur kvenna
Ekki er leyfilegt að nýta sér skjól af öðrum keppendum en þeim sem eru í
sama flokki og viðkomandi keppandi.
<http://events.reynir.net/?event/&eid=29> Smellið hér til að skrá ykkur
Skráning líkur kl. 18:00 föstudaginn 10. ágúst.
Afhending rásnúmera/verðlaunaafhending:
Afhending rásnúmera verður við Félagsheimili Kjalnesinga á milli kl. 9:15 og
9:45 á keppnisdag.
Skoðun öryggisbúnaðar lýkur hálftíma fyrir keppni. Keppendur eru á eigin
ábyrgð í keppnum HFR.
Hjálmaskylda er í öllum keppnum HFR.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20120809/f2ac1594/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 28981 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20120809/f2ac1594/attachment-0001.jpe
More information about the Hfr-keppendur
mailing list