[HFR-keppendur] Sumardagurinn fyrsti fimmtudaginn 22. apríl

Albert Jakobsson aj at hi.is
Mon Apr 19 16:34:40 GMT 2010


http://www.hfr.is/img/frettir/0419_1553_35_1.jpg 



Sumardagurinn fyrsti er á næsta fimmtudag 22. apríl, Hjólreiðafélag
Reykjavíkur ætlar að hafa veglega æfingu af því tilefni og leggja saman
sam-hjól og vera með Samhjól á sumardaginn fyrsta, hjóla í Nesbúð á
Nesjavöllum.  Hjóla Mosfellsheiðina og Grafninginn og enda í Nesbúðinni.
Þeir sem vilja meira geta hjólað í bæinn tilbaka sömu leið, ég geri ráð
fyrir því að Nesjavallaleiðin verði fær. Þau sem eru búinn að fá nóg láta
sækja sig í Nesbúð. Svo er náttúrulega hægt að hjóla með upp á Mosfellsheiði
og snúa þar við ef ekki er tími fyrir langan túr.

Við leggjum af stað frá Nauthólsvík kl 9:30, komum við í Húsasmiðjunni í
Grafarholti, gerum ráð fyrir því að vera þar kl 10. Hópurinn hjólar rólega í
einum hóp að Gljúfrasteini en þá verður skipt upp í hópa eftir hraða, allir
eiga að finna hóp við sitt hæfi.

Í tilefni sumarkomu vil ég bjóða hjólafélagið Bjart, Hjólamenn, Hjólakonur,
Þríþrautargarpa, HMS,  IFHK og allt hjólreiðafólk yfirleitt með okkur í
þennan túr í tilefni sumarkomu.  Það væri glæsileg byrjun á sumri ef stór
hópur hjólreiðafólks legði á heiðina.

Með kveðju 
Albert Jakobsson  

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20100419/b78447a3/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 86343 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20100419/b78447a3/attachment-0001.jpe 


More information about the Hfr-keppendur mailing list