[HFR-keppendur] Næstu tvær vikurnar

Albert Jakobsson aj at hi.is
Tue Jul 29 10:47:56 GMT 2008


 

Hæ.

 

Hvað gerum við þegar ein vika er fram að móti. Það er mjög mikilvægt að
hvíla og fylla á kolvetna forðann þegar 3-4 dagar eru eftir í keppni. Það er
mjög lítið hægt að bæta sig á þessum tíma en mjög mikið hægt að eyðaleggja.
Hjóla létt og fínstilla upphitun og hjólið.

 

Fyrir Meistaramót í ITT þá höfum við viku til að fara nokkrar ferðir á
hjólinu til að venjast stöðunni og gera síðustu lagfæringar.

Vera með upphitun sem þið prófið og takið 2*10 á keppnistempói á þriðjudag,
miðvikudag eða fimmtudag.

 

Fyrir Meistaramót í Fjallahjóli þá er um að gera að hjóla brautina og læra
hverja beygju og hvernig að komast klakklaust yfir rætur.

 

Hér er tilaga hvernig er hægt hita upp fyrir keppni.

 

Upphitun.

 

20 mín létt, Þolæfingar hraði létt spinn í léttum gír.

10 mín á tempói, byggja upp álag þannig að þú endar á rétt á sýruþröskuldi á
loka mínútunni

3-5 mín létt spinn

5 mín á  sýruþröskuld

5 mín létt spinn

1 mín á Vo2 álagi á háum cadence

3-5 mín létt

 

Það þarf hver og einn að búa til sína upphitun próf sig áfram með hana.

 

Með kveðju 
Albert Jakobsson 
       __ o 
     _-\<,_ 
....(_)/ (_)..... 
____________________________________________ 
E-mail aj at hi.is 
GSM: 8996026 Heima: 5525544
____________________________________________ 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20080729/d1c63f9b/attachment.html


More information about the Hfr-keppendur mailing list