[ÖRFÍ]Fræðslufundur: Breyttar reglur um innflutning á hráu kjöti

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Tue Nov 19 08:41:13 GMT 2019


Vinsamlega dreifið innan ykkar fyrirtækis:

Fræðslufundur: Breyttar reglur um innflutning á hráu kjöti

Matvælastofnun heldur fræðslufund um breyttar reglur um innflutning á hráu kjöti til Íslands fimmtudaginn 28. nóvember kl. 13:00 - 15:00 í húsnæði stofnunarinnar að Dalshrauni 1b í Hafnarfirði.

Markmið fundar er að upplýsa um þær reglur sem brátt taka gildi um innflutning á fersku hráu kjöti til Íslands og þær kröfur sem innflytjendur og dreifingaraðilar þurfa að uppfylla. Farið verður yfir viðbótartryggingar vegna salmonellu og sérreglur um kampýlóbakter.

Dagskrá:


  *   Breyttar reglur um innflutning á fersku hráu kjöti til Íslands
  *   Staðan á Íslandi og í Evrópu
  *   Kampýlóbakter í alifuglakjöti - ábyrgð matvælafyrirtækja
  *   Salmonella í eggjum og kjöti - ábyrgð matvælafyrirtækja
  *   Eftirlit og viðurlög

Fundurinn er ætlaður matvælafyrirtækjum, einkum þeim sem flytja inn og dreifa hráum dýraafurðum, og öðrum áhugasömum.

Tilefni fundar er afnám frystikröfu og leyfisveitingar á innfluttum hráum dýraafurðum í kjölfar EFTA dóms.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið að sérreglum um kampýlóbakter í alifuglakjöti og öflun viðbótartrygginga vegna salmonellu í samstarfi við Matvælastofnun. Í upphafi ársins samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heimild Íslands til að beita reglum um viðbótartryggingar vegna salmonellu í innfluttu kjúklinga- og kalkúnakjöti og eggjum. Viðbótartrygging vegna salmonellu í innfluttu svína- og nautakjöti var samþykkt á fundi sameiginlegu EES nefndarinnar 25. október sl.

Fræðslufundurinn er opinn öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu. Honum verður streymt í gegnum Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook<https://www.facebook.com/neytendavakt/> og upptaka gerð aðgengileg þar og á vef Matvælastofnunar að fundi loknum.

Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________

Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191119/2513cc20/attachment.html>


More information about the Gerlanet mailing list