[ÖRFÍ]Páll Agnar Pálsson - aldarminning

Stefán Ragnar Jónsson stefanjo at hi.is
Mon Nov 4 16:17:00 GMT 2019


[cid:image001.png at 01D46F77.7A08B790]

Þann 7. nóvember verður haldið málþing í bókasafni Keldna í tilefni þess að í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Páls Agnars Pálssonar, fyrrverandi yfirdýralæknis. Þingið stendur frá kl 15-16 og munu dýralæknarnir Helgi Sigurðsson og Eggert Gunnarsson segja frá Páli Agnari, störfum hans sem yfirdýralæknis og helstu rannsóknum. Að loknum fyrirlestrum verður boðið upp á kaffiveitingar.

Þeir sem hafa hug á að mæta vinsamlegast staðfesti komu sína með því að svara þessum pósti.

Páll Agnar (1919-2003) var meðal fyrstu sérfræðinga Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þegar starfsemin hófst fyrir rúmlega sjötíu árum og hafði starfsaðstöðu hér í fimm áratugi. Hann var dýralæknamenntaður frá Dýralækna- og Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn og sótti viðbótarmenntun í sýkla- og meinafræði húsdýra víðar erlendis. Páll Agnar átti farsælan feril sem brautryðjandi á Tilraunastöðinni í ýmsum rannsókna- og greiningaverkefnum tengdum dýrasjúkdómum. Einnig vann hann ötullega að því að fyrirbyggja dýrasjúkdóma og útrýmingu þeirra. Eftir hann liggur langur ritlisti vísinda- og fræðigreina.  Þar er um að ræða sérhæfðar niðurstöður vísindarannsókna og ítarlegan fróðleik um ýmsa dýrasjúkdóma og baráttuna við þá.  Páll Agnar gegndi stöðu forstöðumanns Tilraunastöðvarinnar í tæpan áratug og stöðu yfirdýralæknis í rúmlega þrjá áratugi.






-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191104/bbe716de/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.png
Type: image/png
Size: 64661 bytes
Desc: image001.png
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191104/bbe716de/attachment-0001.png>


More information about the Gerlanet mailing list