[ÖRFÍ]LEIÐRÉTT: Fræðsluerindi á Keldum: Nóbelsverðlaun í efnafræði 2017. „Cryo-electron microscopy“ Tækniframfarir varðandi skoðun á lífsameindum í rafeindasmásjá. Ný rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og notkunarmöguleikar.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Tue Nov 14 12:19:55 GMT 2017
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari: *Jóhann Arnfinnsson*, verkefnisstjóri við
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
Heiti erindis: *Nóbelsverðlaun í efnafræði 2017. „Cryo-electron
microscopy“ Tækniframfarir varðandi skoðun á lífsameindum í
rafeindasmásjá. Ný rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og notkunarmöguleikar.*
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 16. nóvember kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Sagt verður lítillega frá Nóbelsverðlaunum í efnafræði, en þau hlutu
Jacques Dubochet (Háskólanum í Lausanne, Sviss), Joachim Frank (Columbia
Háskólanum, New York, USA) og Richard Henderson (MRC Laboratory of
Molecular Biology, Cambridge, UK).
Verðlaunin í ár eru veitt þeim félögum fyrir þróun og notkun á nýrri
rafeindasmásjártækni „cryo-electron microscopy“ til að mynda
þrívíddarbyggingu lífsameinda í mjög hárri upplausn.
Einnig verður sagt frá rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og tilheyrandi
búnaði og hvað hægt er að gera með honum.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20171114/95aef072/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20171114/95aef072/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list