[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Nóbelsverðlaun í efnafræði 2017. „Cryo-electron microscopy“ Tækniframfarir varðandi skoðun á lífsameindum í rafeindasmásjá. Ný rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og notkunarmöguleikar.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Tue Nov 14 09:22:01 GMT 2017



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari: *Jóhann Arnfinsson*, verkefnisstjóri við 
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Heiti erindis: *Nóbelsverðlaun í efnafræði 2017. „Cryo-electron 
microscopy“ Tækniframfarir varðandi skoðun á lífsameindum í 
rafeindasmásjá. Ný rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og notkunarmöguleikar.*

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 16. nóvember kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Sagt verður lítillega frá Nóbelsverðlaunum í efnafræði, en þau hlutu 
Jacques Dubochet (Háskólanum í Lausanne, Sviss), Joachim Frank (Columbia 
Háskólanum, New York, USA) og  Richard Henderson (MRC Laboratory of 
Molecular Biology, Cambridge, UK).
Verðlaunin í ár eru veitt þeim félögum fyrir þróun og notkun á nýrri 
rafeindasmásjártækni „cryo-electron microscopy“ til að mynda 
þrívíddarbyggingu lífsameinda í mjög hárri upplausn.

Einnig verður sagt frá rafeindasmásjá Lífvísindaseturs og tilheyrandi 
búnaði og hvað hægt er að gera með honum.
_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20171114/3236b7d3/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20171114/3236b7d3/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list