[ÖRFÍ]Fræðsluerindi?==?utf-8?q? á Keldum:?==?utf-8?q? Grunnrannsóknir?==?utf-8?q? í Blóðbankanum.​​​​​​​

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Tue Oct 11 12:00:13 GMT 2016


Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar fólks.

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Fyrirlesari: Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar í Blóðbankanum og dósent við Tækni- og Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Heiti erindis: Grunnrannsóknir í Blóðbankanum.

Erindið verður haldið fimmtudaginn 13. október kl. 12:20, í bókasafni Tilraunastöðvarinnar.

Blóðbankinn hefur ávallt haft grunnrannsóknir sem eina af sínum grunnstoðum. Grunnrannsóknir á sviði erfðafræði á Íslandi eiga að stórum hluta til uppruna sinn í Blóðbankanum með frumkvöðlastarfi Dr. Ólafs Jenssonar og hans samstarfsfólks. Í dag rekur Blóðbankinn öflugt grunnrannsóknstarf á sviði stofnfrumna, vefjaverkfræði og blóðbankafræði. Því starfi er stýrt af Ólafi E. Sigurjónssyni, doktor í stofnfrumulíffræði og dósent við Háskólann í Reykjavík. Markmið grunnrannsóknarstarfs Blóðbankans er að að brúa bilið á milli tilraunavísinda og læknisfræðilegra rannsókna til að skapa jarðveg fyrir nýjungar í læknisfræði á sviði stofnfrumna, vefjaverkfræða og blóðbankafræða á Íslandi. Að rannsóknunum koma starfsmenn Blóðbankans og fleiri starfseininga á Landspítala, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík auk fjölda annarra innlendra og erlendra samstarfsaðila.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum 


 

 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20161011/df073966/attachment.html>


More information about the Gerlanet mailing list