<html><img src="webkit-fake-url://1cccf2b8-7aae-43d2-ae50-d90404f7d0fd/image.tiff" /><br /><span style="color:#FF0000;">Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar fólks.</span><br /><br /><strong>Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.</strong><br /><br />Fyrirlesari:<strong> Ólafur Eysteinn Sigurjónsson</strong>, forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar í Blóðbankanum og dósent við Tækni- og Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.<br /><br />Heiti erindis:<strong> Grunnrannsóknir í Blóðbankanum.</strong><br /><br />Erindið verður haldið <u>fimmtudaginn 13. október kl. 12:20</u>, í bókasafni Tilraunastöðvarinnar.<br /><br />Blóðbankinn hefur ávallt haft grunnrannsóknir sem eina af sínum grunnstoðum. Grunnrannsóknir á sviði erfðafræði á Íslandi eiga að stórum hluta til uppruna sinn í Blóðbankanum með frumkvöðlastarfi Dr. Ólafs Jenssonar og hans samstarfsfólks. Í dag rekur Blóðbankinn öflugt grunnrannsóknstarf á sviði stofnfrumna, vefjaverkfræði og blóðbankafræði. Því starfi er stýrt af Ólafi E. Sigurjónssyni, doktor í stofnfrumulíffræði og dósent við Háskólann í Reykjavík. Markmið grunnrannsóknarstarfs Blóðbankans er að að brúa bilið á milli tilraunavísinda og læknisfræðilegra rannsókna til að skapa jarðveg fyrir nýjungar í læknisfræði á sviði stofnfrumna, vefjaverkfræða og blóðbankafræða á Íslandi. Að rannsóknunum koma starfsmenn Blóðbankans og fleiri starfseininga á Landspítala, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík auk fjölda annarra innlendra og erlendra samstarfsaðila.<br />_______________________________________________________________<br /><span style="font-size:9px;">Birkir Þór Bragason<br />Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum</span><div> </div><br /><br /><br /> <div><br /><br /> </div></html>