[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Mítlar og mítilbornar sýkingar i norður Evrópu.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Thu Nov 17 09:34:30 GMT 2016



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*
*

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Sigurður Skarphéðinsson*, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild 
Odense Universitetshospital (OUH) í Danmörku og forstjóri Clinical 
Center for Emerging and Vector-borne Infections, OUH.

Heiti erindis:***Mítlar og mítilbornar sýkingar i norður Evrópu.*

**

Erindið verður haldið _mánudaginn 21. nóvember _kl. 12:20, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Á seinni árum hefur mikilvægi mítilborinna smitsjúkdóma í Evrópu aukist. 
Orsaka þessa má leita i breyttu loftslagi, breyttum landbúnaðarháttum og 
mannlegu atferli. Rannsóknir á mítlum hafa samtímis leitt í ljós að þeir 
bera mun fleiri sjúkdómsvalda en áður var talið. Fram að þessu hafa 
mítilbornar sýkingar ekki verið vandamál á Íslandi en með aukinni 
skógrækt og breyttu loftslagi opnast möguleikar á auknu landnámi mítla. 
Farið verður yfir nokkra þætti um mítla og mítilbornar sýkingar i norður 
Evrópu.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20161117/452d6377/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20161117/452d6377/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list